Aðalfundur FA haldinn á Zoom 11. febrúar

28.01.2021

Aðalfundur Félags atvinnurekenda verður haldinn með fjarfundarforritinu Zoom kl. 15.30 fimmtudaginn 11. febrúar næstkomandi. Stjórn félagsins ákvað að halda fundinn með fjarfundarfyrirkomulagi, þar sem enn verða í gildi samkomutakmarkanir. Félagsmenn geta skráð sig á fundinn hér að neðan og fá þá sendan hlekk til að taka þátt, í tæka tíð fyrir fund.

Dagskrá fundarins, samkvæmt lögum félagsins, er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starf félagsins árið 2020.
  2. Ársreikningur lagður fram til samþykktar.
  3. Fjárhagsáætlun og tillaga um félagsgjöld lögð fram til samþykktar.
  4. Lagabreytingar eða önnur mál.
  5. Kjör formanns og þriggja meðstjórnenda í stjórn félagsins.

Engar tillögur til lagabreytinga eða um önnur mál til að taka upp á fundinum bárust stjórn félagsins fyrir tilskilinn frest.

Kjósa skal formann félagsins, tvo  meðstjórnendur til tveggja ára og einn til eins árs. Áfram sitja í stjórn, kjörin á aðalfundi 2020, þau Anna Kristín Kristjánsdóttir, eigandi og stjórnarmaður í Hvíta húsinu, og Guðmundur R. Sigtryggsson, framkvæmdastjóri XCO.

Eitt framboð barst til formanns félagsins, en framboðsfrestur rann út kl. 12 í dag. Guðrún Ragna Garðarsdóttir framkvæmdastjóri Atlantsolíu, sem setið hefur í stjórn undanfarin tvö ár, gefur kost á sér.

Önnur framboð til stjórnar eru eftirfarandi:
  • Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi í Aflvélum, Burstagerðinni og Spodriba, gefur kost á sér til endurkjörs til tveggja ára.
  • Lilja Dögg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri LYFIS/apótekasviðs Icepharma, gefur kost á sér til tveggja ára.
  • Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innness, gefur kost á sér til eins árs.
Á undan aðalfundinum verður haldinn opinn fundur, „Samkeppnin eftir heimsfaraldur“, sem verður í beinu streymi á Facebook-síðu félagsins og á visir.is. Sá fundur hefst kl. 14.

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning