FA leggst gegn samkeppnisundanþágu vegna lambakjötsútflutnings: Enginn ávinningur fyrir neytendur

15.06.2017

Félag atvinnurekenda leggst gegn því að Markaðsráði kindakjöts verði veitt undanþága frá samkeppnislögum til að efna til samstarfs sláturleyfishafa um útflutning á lambakjöti. Í svari við umsagnarbeiðni Samkeppniseftirlitsins bendir FA á að ávinningur neytenda af samstarfinu sé enginn, þvert á móti sé það þeim til tjóns vegna þess að verði sé haldið uppi. Skilyrði fyrir beitingu 15. greinar samkeppnislaga séu því ekki uppfyllt.

Í beiðni Markaðsráðs kindakjöts um undanþágu kemur fram að gert er ráð fyrir að samstarf sláturleyfishafa feli í sér að þeir skuldbindi sig til að flytja út 35% af framleiðslu sinni. Þá greiði þeir Markaðsráðinu útflutningsgjald ef þeir standi ekki við þá skuldbindingu.

Í bréfi FA til Samkeppniseftirlitsins er bent á að í raun sé ekkert skilyrða 15. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 uppfyllt til að hægt sé að fallast á undanþágu frá bannreglu 10. gr. laganna. „Einhvers konar samstarf um markaðssetningu kann að vera lögmætt og má í því samhengi vísa til þess ágæta starfs sem unnið er á vettvangi Íslandsstofu til að markaðssetja og kynna íslenskt lambakjöt erlendis. Það sama á ekki við um annað samstarf, sér í lagi skiptingu markaða og samkomulag um að takmarka vöruframboð á markaði sem mun halda uppi verði,“ segir í bréfi FA.

„Hugmyndir markaðsráðsins um útflutningsskyldu, sem lögð verði á sláturleyfishafa, eru stórkostlega gallaðar og ólögmætar. Þær munu eingöngu skaða hagsmuni neytenda. Þessar hugmyndir þjóna að meginstefnu því markmiði að halda uppi verði á innlendum markaði með því að skerða framboð. Slíkt er ótækt. Þetta er óhjákvæmilega til tjóns fyrir neytendur og felur ekki í sér neinn ábata þeim til handa. Eru því aldrei uppfyllt þau skilyrði um sanngjarna hlutdeild neytenda sem áskilin eru í b. lið 1. mgr. 15. gr. samkeppnislaga,“ segir í bréfi FA.

Bréf FA til Samkeppniseftirlitsins

 

Nýjar fréttir

Innskráning