Félagsfundur um styttingu vinnuvikunnar

29.10.2019
Ólafur Stephensen

Félag atvinnurekenda boðar til félagsfundar um styttingu vinnuvikunnar, sem tekur gildi um áramót samkvæmt kjarasamningi FA og VR frá því í apríl. Á fundinum, sem verður haldinn kl. 8.30 til 10 miðvikudaginn 6. nóvember, munu Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA og Jónatan Hróbjartsson lögfræðingur fara yfir ákvæði samningsins um vinnutíma, ræða mismunandi útfærslur og svara þeim spurningum sem kunna að hafa komið upp hjá félagsmönnum vegna vinnutímaákvæða samningsins.

Samkvæmt kjarasamningi VR og FA verður virkur vinnutími fyrir fulla dagvinnu 35 klst. og 30 mínútur frá og með 1. janúar 2020, en í dag er virkur vinnutími 36 klst. og 15 mínútur. Eftir styttingu samsvarar vinnuvikan 7 klst. og 6 mínútna virkum vinnutíma á dag,, þ.e. án allra neysluhléa svo sem kaffihléa eða hádegishléa.

Í kjarasamningi VR og FA kemur fram að atvinnurekendur skulu hafa samráð við launamenn um tillögu að útfærslu vinnutímastyttingar og eru jafnframt tekin dæmi um mögulegar útfærslur vinnutímastyttingar, t.d.:

  1. Hver dagur styttist um 9 mínútur
  2. Hver vika styttist um 45 mínútur
  3. Safnað upp innan ársins
  4. Vinnutímastyttingu með öðrum hætti.
Jónatan Hróbjartsson

Þá er sérstaklega tekið fram í kjarasamningnum að samkomulag skuli liggja fyrir á vinnustað fyrir 1. desember 2019. Ef ekki, þá styttist vinnutími um 9 mínútur á dag miðað við fullt starf, sbr. tillögu a. í kjarasamningi VR og FA.

FA hefur hvatt félagsmenn sína til að hlusta vel á hugmyndir og tillögur starfsfólks um breytt fyrirkomulag vinnutímans. Þá skipti máli að nota þetta tækifæri til að fara vel yfir núverandi skipulag vinnutíma, hver sé raunverulegur virkur vinnutími starfsmanna og hvar séu álagstoppar í starfseminni. Kjarasamningur FA og VR er sveigjanlegur og kveður á um að dagvinnu megi skipuleggja á bilinu kl. 7 til 19. Ein lausn vinnutímastyttingar getur verið að fólk mæti á mismunandi tímum til að tryggja mönnun á álagstoppum en að fólk njóti frítíma þegar minna er að gera. Rækileg greining á vinnutímafyrirkomulagi í fyrirtækjum getur leitt af sér hugmyndir að vinnusparnaði og skilvirkari úrlausn verkefna, sem þýðir að bæði starfsfólk og fyrirtæki hafi áþreifanlegan hag af breytingu á skipulagi vinnutímans.

Fundurinn er haldinn í fundarsal FA á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Léttur morgunverður er í boði. Skráning á fundinn er hér að neðan.

 

Nýjar fréttir

22. apríl 2024

Innskráning