Opinn fundur 1. febrúar: Áskoranir fjórðu iðnbyltingarinnar

20.01.2018

Félag atvinnurekenda efnir til opins fundar á undan aðalfundi félagsins á Nauthóli kl. 14-16 fimmtudaginn 1. febrúar. Umræðuefnið er fjórða iðnbyltingin svokallaða. Aukin sjálfvirkni, vélmenni og gervigreind taka yfir æ fleiri hefðbundin störf og tækniþróun umbyltir mörgum atvinnugreinum. Í því felast bæði tækifæri og áskoranir.

14.00  Fundur settur – Elín Helga Sveinbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri Hvíta hússins, fundarstjóri

14.05  Ávarp ráðherra – Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra

14.15  Vöruhús framtíðarinnar – Heimir Guðmundsson, vöruhúsastjóri Innness

14.35  Róbótarnir eru komnir í bjórinn – Margrét Arnardóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Ölgerðarinnar

14.55  Menntun fyrir atvinnulíf fjórðu iðnbyltingarinnar – Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík

15.15 Stjórnandinn á tímum fjórðu iðnbyltingarinnar – Árelía Eydís Guðmundsdóttir, dósent í stjórnun og leiðtogafræðum hjá Háskóla Íslands

15.35  Félagsskapur fyrir framtíðina: Stefnumótunarverkefni FA – Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA

Aðalfundur FA hefst kl. 16.15 að loknu kaffihléi

 

Skráning á fundinn hér að neðan. Athugið að hægt er að haka bæði við opna fundinn og aðalfundinn, sem opinn er félagsmönnum í FA.

 

Nýjar fréttir

Innskráning