Félag atvinnurekenda hefur sent Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) formlega kvörtun vegna niðurgreiðslna stjórnvalda á sumarnámskeiðum háskóla, sem haldin eru í beinni samkeppni við námskeið á vegum félagsmanna FA, einkarekinna fræðslufyrirtækja.
FA sendi menntamálaráðherra erindi i síðustu viku vegna 500 milljóna króna framlags mennta- og menningarmálaráðuneytisins til sumarnáms í háskólum landsins, sem komið var á til að bregðast við bágu atvinnuástandi í kjölfar heimsfaraldurs COVID-19 veirunnar. Komið hefur í ljós að drjúgur hluti þessarar fjárveitingar rennur til endur- og símenntunarstofnana háskólanna og að námskeið, sem eru utan verksviðs háskólanna eins og það er skilgreint í lögum, eru niðurgreidd um tugi þúsunda króna. Viðkomandi starfsemi er í beinni samkeppni við námskeið á vegum einkarekinna fræðslufyrirtækja. Háskólarnir, sem njóta ríkisstyrkja fyrir, bjóða námskeið á 3.000 krónur í krafti niðurgreiðslunnar. Það er verð sem keppinautar þeirra geta ekki með nokkru móti keppt við. FA benti í erindi sínu á aðra og sanngjarnari leið til að styrkja sumarnám, jafnt á vegum háskólanna og annarra fræðslufyrirtækja, en hefur ekki fengið nein svör frá ráðuneytinu.
FA færir að því rök í kvörtuninni til ESA að útfærsla niðurgreiðslunnar brjóti gegn 61. grein samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, en hún leggur bann við samkeppnishamlandi ríkisstyrkjum, sem hafa áhrif á viðskipti milli aðildarríkjanna. Áðurnefnd námskeið opinberra og/eða ríkisstyrktra háskóla eru meðal annars í beinni samkeppni við námskeið fyrirtækja í öðrum EES-ríkjum, sem haldin eru á netinu fyrir íslenska viðskiptavini eða í samstarfi við íslensk fræðslufyrirtæki. Sum íslensk fyrirtæki í þessum geira eru hluti af víðtæku alþjóðlegu neti fræðslufyrirtækja. Samkvæmt upplýsingum sem FA aflaði sér hjá ESA hafa þessir ríkisstyrkir ekki verið bornir undir stofnunina af hálfu stjórnvalda líkt og t.d. ferðagjöfin til landsmanna.
ESA hefur staðfest mótttöku kvörtunarinnar.