- Forsíða
- Félagsmenn FA
Félagsmenn FA
Félag atvinnurekenda er hagsmunasamtök lítilla sem stórra fyrirtækja í inn- og útflutningi, heildsölu og smásölu. Í dag eru um 180 fyrirtæki í félaginu. Innan FA eru samstarfsfélög sem starfa á á grundvelli atvinnugreina, Samband íslenskra auglýsingastofa og Samtök fiskframleiðenda og útflytjenda.
FA er virkur vettvangur fyrir félagsmenn til að skiptast á skoðunum og reynslu. Félagið kappkostar að sinna öflugri upplýsingamiðlun um þau mál sem efst eru á baugi hverju sinni. Er það gert með félagsfundum, námskeiðum og beinni upplýsingagjöf til félagsmanna. Á undanförnum árum hafa fræðslu- og kynningarmál verið stór hluti af starfsemi félagsins. FA leggur áherslu á að skapa jákvæða ímynd einkum gagnvart stjórnvöldum, félagsmönnum og fjölmiðlum. Við viljum að framganga félagsins einkennist af trúverðugleika og fagmennsku í öllum málum.
Í samstarfi við Félag atvinnurekenda starfa tvö félög á grundvelli atvinnugreina. Þau eru í forsvari fyrir sameiginleg hagsmunamál fyrirtækja á sínu sviði, eru bakhjarl á opinberum vettvangi og veita stuðning í formi fræðslu um vinnumarkaðsmál og rekstur fyrirtækja.
Nánar um samstarfsfélög FA
Frá því í febrúar 2021 hefur FA heimsótt eitt aðildarfyrirtæki vikulega og birt um það umfjöllun á Facebook- og Instagram-síðum félagsins undir myllumerkinu #félagmaðurvikunnar. Annars vegar er sögð saga í myndum og myndskeiðum af starfsemi fyrirtækisins sem hægt er að skoða í „story highlights“ á Instagram-reikningnum okkar. Hins vegar smellum við mynd af framkvæmdastjóra eða öðrum forsvarsmanni fyrirtækisins.Fylgist með myllumerkinu #félagsmaðurvikunnar á samfélagsmiðlunum okkar. Þessi umfjöllun sýnir vel breiddina í félaginu og hvað atvinnurekendur eru fjölbreyttur og áhugaverður hópur. Meirihluti fyrirtækjanna sem við höfum heimsótt er fjölskyldufyrirtæki sem eigendurnir reka sjálfir.
Nánar um félagsmenn vikunnar
Félag atvinnurekenda á í samstarfi við Íslensk-evrópska viðskiptaráðið, Íslensk-indverska viðskiptaráðið og Íslensk-taílenska viðskiptaráðið, sem öll eru rekin og hýst af FA.
Nánar um viðskiptaráðin
Íslensk – indverska viðskiptaráðið var stofnað 4.maí 2005.
Íslensk-taílenska viðskiptaráðið var stofnað 6. september 2016.
Íslensk-evrópska verslunarráðið var stofnað 16. maí 2018.
- Markmið starfsreglna þessara er að tryggja að ákvæði samkeppnislaga séu í heiðri höfð í allri starfsemi Félags atvinnurekenda sem og að stuðla að virkri samkeppni á þeim mörkuðum sem starfsemi félagsins tekur til.
- Í starfsemi Félags atvinnurekenda, hvort heldur sem er á félagsfundum, stjórnarfundum, innan sérgreinahópa, fagnefnda, fulltrúaráðs eða kjararáðs eða hverjum öðrum vettvangi sem félagsmenn hittast innan vébanda félagsins, skal þess ávallt gætt að öll samskipti séu í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.
- Starfsmenn Félags atvinnurekenda skulu ávallt gæta þess að samskipti þeirra við félagsmenn, miðlun upplýsinga þeirra á milli sem og yfirlýsingar þeirra jafnt innan félagsins sem á opinberum vettvangi séu í samræmi við ákvæði samkeppnislaga.
- Öllum þeim sem sækja fundi á vettvangi Félags atvinnurekenda eða eiga samskipti við keppinauta sína á markaði innan vébanda félagsins ber skylda til að virða ákvæði samkeppnislaga í hvívetna og gæta þess að öll samskipti rúmist innan þess ramma sem þau marka.
- Á vettvangi Félags atvinnurekenda skal aldrei fjalla um eða miðla upplýsingum um verð, verðþróun, viðskiptakjör eða önnur viðkvæm viðskiptaleg eða samkeppnisleg málefni með þeim hætti að dregið sé úr viðskiptalegu sjálfstæði félagsmanna eða samkeppni raskað með öðrum hætti.
- Lögfræðingur Félags atvinnurekenda eða fulltrúi hans skal vera viðstaddur alla félagsfundi, stjórnarfundi, fundi sérgreinahópa, fagnefnda, fulltrúaráðs, kjararáðs og aðra fundi á vettvangi félagsins þar sem ætla má að keppinautar á markaði hittist. Honum ber skylda til að framfylgja starfsreglum þessum og gæta þess að samskipti keppinauta á vettvangi Félags atvinnurekenda séu í samræmi við reglur þessar og ákvæði samkeppnislaga.
Félag atvinnurekenda rekur öfluga hagsmunabaráttu. Þar má nefna öfluga lögfræðiþjónustu, starf faghópa og gerð umsagna um laga- og reglugerðarbreytingar. Félagið stendur einnig fyrir fjölbreyttum námskeiðum fyrir stjórnendur og starfsfólk aðildarfyrirtækja. Þá er félagið aðili að kjarasamningum gagnvart VR, RSÍ, Lyfjafræðingafélagi Íslands og Grafíu.
Hér sérðu nokkra góða punkta um ávinning fyrir félagsmenn:
Ráðgjöf á sviði viðskipta
- Yfirlestur samninga, ráðleggingar tengdar rekstri, úrvinnsla félagaréttarlegra mála, námskeið fyrir einstaka geira eða fyrirtæki um tiltekin mál.
Hagsmunabarátta fyrir félagsmenn.
Dæmi um nýleg mál:
- Barátta fyrir afnámi vörugjalda og tolla sem skilaði sér þegar vörugjöldin voru aflögð í byrjun árs 2015 og tollar á aðrar vörur en búvörur í byrjun árs 2017.
- Barátta fyrir auknu frelsi í innflutningi landbúnaðarvara, lækkun tolla og stækkun tollkvóta. Sú barátta hefur meðal annars skilað sér í margföldun tollfrjálsra innflutningskvóta með tvíhliða tollasamningi við Evrópusambandið.
- FA hefur beitt sér fyrir því að innkaup hins opinbera séu boðin út, til dæmis flugfargjöld, og oft haft erindi sem erfiði.
- FA hefur aflað upplýsinga um stöðu gengislána fyrirtækja og hvatt til þess að klárað verði að greiða úr málum sem enn eru í ágreiningi milli bankanna og fyrirtækja.
- Öflug barátta fyrir hagstæðara skattaumhverfi fyrirtækja. FA mótmælti hækkun tryggingagjalda, eitt samtaka atvinnurekenda, og hefur þrýst á sveitarfélögin að lækka fasteignagjöld á fyrirtæki. Síðarnefnda baráttan hefur á undanförnum árum skilað lækkun álagningarprósentu hjá átta af tólf stærstu sveitarfélögum landsins.
- Öflug barátta fyrir skynsamlegum sparnaði í lyfjainnkaupum hins opinbera.
- FA hefur beitt sér fyrir skýrum reglum um eignarhald og afskipti banka af atvinnufyrirtækjum.
- Jafnt aðgengi að hráefni á fiskmörkuðum þannig að eðlileg samkeppni í fiskvinnslu þrífist er eitt af áherslumálum félagsins.
- FA hefur barist fyrir einföldun regluverks fyrirtækja og samkeppnismati, sem felur í sér að lagður sé mælikvarði jafnt á ný lagafrumvörp og gildandi löggjöf og metið hvort reglurnar dragi úr samkeppni eða efli hana. Samkeppnismat hefur nú verið tekið upp á afmörkuðum sviðum, þ.e. í byggingariðnaði og ferðaþjónustu, en FA telur að það ætti að ná til allrar löggjafar um atvinnulífið.
- FA setur samkeppni á markaði í öndvegi eins ofangreint ber með sér.
Námskeiðahald fyrir félagsmenn og starfsmenn þeirra. Námskeiðin eru haldin í samvinnu við Starfsmenntasjóð FA og VR.
Kjarasamningagerð við VR, Rafiðnaðarsambandið, Lyfjafræðingafélagið, Grafíu, stéttarfélag í prent- og miðlunargreinum og Félag lykilmanna er á höndum félagsins