Félag atvinnurekenda

Félag atvinnurekenda gætir hagsmuna stórra sem smárra aðildarfyrirtækja með því að vera einarður talsmaður viðskiptafrelsis og heilbrigðrar samkeppni.

Félag atvinnurekenda var stofnað 1928 af 20 inn- og útflutningsfyrirtækjum, þá sem Félag íslenskra stórkaupmanna. Félagið á sér því langa sögu.

Félag atvinnurekenda er samsett af tæplega 200 félögum úr hinum ýmsu greinum atvinnulífsins. Inn- og útflutningsfyrirtæki eru áberandi í félaginu en aðildarfyrirtækin starfa í flestum geirum, til dæmis auglýsingagerð, ferðaþjónustu, samgöngum og flutningum, fjarskiptum, fjölmiðlun, fræðslu og þjálfun, fiskvinnslu, eldsneytissölu, veitinga- og ferðaþjónustu og þannig mætti áfram telja. Undanfarin ár hefur félagið orðið kostur margra áskorenda á markaði, sem efna til samkeppni þar sem áður ríkti fákeppni eða einokun.

Félag atvinnurekenda hefur það meginhlutverk að gæta hagsmuna félagsmanna gagnvart hinu opinbera og hafa áhrif á vöxt og viðgang þeirra greina sem félagsmenn starfa í. Félagið sinnir þessu hlutverki m.a. með því að vera öflugur talsmaður í almennri umræðu, með umsögnum um lagafrumvörp og reglugerðir og einnig á fundum með fulltrúum ráðuneyta, þingmanna og stofnana hins opinbera.

Félag atvinnurekenda hefur lagt sig fram um að veita félagsmönnum öfluga og vandaða lögfræðiþjónustu, hvort heldur er á sviði vinnuréttarmála, tollamála eða annarra þeirra mála sem koma upp í starfsemi fyrirtækja.

Félag atvinnurekenda fer einnig með gerð kjarasamninga og semur við VR, Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, Visku, Grafíu, Rafiðnaðarsamband Íslands, Lyfjafræðingafélag Íslands og Félag lykilmanna. Félagið veitir félagsmönnum ókeypis lögfræðilega þjónustu um túlkun kjarasamninga og aðstoð í ágreiningsmálum er upp kunna að koma á vinnustað.

Félag atvinnurekenda heldur uppi öflugu fræðslustarfi og stendur fyrir fjölda námskeiða og fyrirlestra á ári hverju. Félagið er aðili að Starfsmenntasjóði verslunarinnar ásamt VR og LÍV.

Félag atvinnurekenda miðlar viðskiptasamböndum og sinnir kynningarstarfi á erlendum mörkuðum. Félagið tekur þátt í erlendum vörusýningum og sér um móttöku erlendra viðskiptasendinefnda, meðal annars í gegnum viðskiptaráðin þrjú.

Félag atvinnurekenda hefur á starfstíð sinni komið að ýmsum átaksverkefnum. Nefna má byggingu Húss verslunarinnar, þriggja heildsölumiðstöðva, en þar á meðal er Sundaborgin, stofnun Verslunarbanka Íslands og Lífeyrissjóðs verslunarmanna. Nær okkur í sögunni má nefna stofnun Gripið og greitt hf., Nýju skoðunarstofuna hf. (nú hluti af Frumherja hf.) og Global Refund á Íslandi ehf.

FA er í stöðugri hagsmunabaráttu fyrir félagsmenn sína. Í ársskýrslunni okkar má sjá yfirlit um helstu baráttumál FA sem eru í deiglunni þessa stundina.

Nánar um baráttumál félagsins


  • Guðrún Ragna Garðarsdóttir,formaður gudrun@atlantsolia.is

    Framkvæmdastjóri Atlantsolíu ehf.

    (kjörin 2023 til tveggja ára)

  • Anna Kristín Kristjánsdóttir annak@hvitahusid.is

    Eigandi og stjórnarmaður í Hvíta húsinu

    (kjörin 2024 til tveggja ára)

  • Friðrik Ingi Friðriksson ingi@aflvelar.is

    Forstjóri og eigandi í Aflvélum og Burstagerðinni

    (kjörinn 2023 til tveggja ára)

  • Guðmundur R. Sigtryggsson grs@xco.is

    Framkvæmdastjóri XCO ehf.

    (kjörinn 2024 til tveggja ára)

  • Leifur Örn Leifsson lol@innnes.is

    Framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innness ehf.

    (Kjörinn 2024 til tveggja ára)

  • Lilja Dögg Stefánsdóttir lilja.dogg@icepharma.is

    Framkvæmdastjóri lyfjasviðs Icepharma

    (Kjörin 2023 til tveggja ára)

 
  • Framkvæmdastjóri: Ólafur Stephensen

Starfsmenn

Ólafur Stephensen

Framkvæmdastjóri

Bjarndís Lárusdóttir

Skrifstofustjóri

Birta Sif Arnardóttir

Lögfræðingur

Páll Rúnar M. Kristjánsson

Sérfræðingur

Innskráning