Morgunverðarerindi og aðalfundur ÍKV

25.05.2016
Ragnar Baldursson á námsárum sínum í Kína.
Ragnar Baldursson á námsárum sínum í Kína.

Íslensk-kínverska viðskiptaráðið heldur aðalfund sinn þriðjudaginn 31. maí næstkomandi. Áður en hefðbundin aðalfundarstörf hefjast heldur Ragnar Baldursson,  sendiráðunautur í sendiráði Íslands í Peking, erindi undir yfirskriftinni „Framtíð Kína í fortíðarljósi“. Ragnar kynnir meðal annars nýútkomna bók sína, Ninteen Seventy-Six, Penguin China Special. Bókin fjallar um atburði ársins þegar Mao formaður lést en Ragnar var þá nýkominn til náms í Pekingháskóla.

Fundurinn hefst kl. 8.30 með erindi Ragnars, sem er öllum opið. Að því loknu verða fyrirspurnir og umræður. Um kl. 9.30 hefjast venjuleg aðalfundarstörf.

Dagskrá aðalfundar ÍKV

1.     Fundargerð síðasta fundar.

2.     Stjórn félagsins skýrir frá störfum félagsins.

3.     Stjórn félagsins leggur fram endurskoðaða reikninga fyrir síðasta ár.

4.     Kjör formanns og/eða fimm stjórnarmanna til þriggja ára.

5.     Kjör skoðunarmanns.

6.     Önnur mál.

7.     Næsti fundur.

8.     Fundarslit.

Fundurinn verður haldinn í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Morgunverður er í boði á fundinum. Skráning á fundinn er hér að neðan. Athugið að velja réttan viðburð.

Upplýsingar um bók Ragnars Baldurssonar

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning