Bókun 35 og íslenskir hagsmunir – fundi frestað

14.10.2024

Uppfært 14. október: Í ljósi fregna af þingrofi og kosningum hefur verið ákveðið að fresta áður auglýstum fundi Íslensk-evrópska verslunarráðsins og Félags atvinnurekenda um bókun 35 við EES-samninginn. Ný dagsetning verður auglýst síðar.

Margir hafa skoðun á bókun 35 við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið en færri vita nákvæmlega hvað í henni felst eða hvernig innleiðing hennar í íslenskan rétt á sínum tíma hefur haft áhrif á hagsmuni fólks og fyrirtækja á Íslandi. Að hluta til snýst málið um að Ísland standi við skuldbindingar sínar gagnvart EES-samningnum og að Íslendingar geti byggt rétt sinn á samningnum eins og borgarar annarra EES-ríkja. Félag atvinnurekenda og Íslensk-evrópska viðskiptaráðið efna til opins morgunverðarfundar 29. október næstkomandi, þar sem farið verður yfir þýðingu málsins, tilurð frumvarps utanríkisráðherra sem liggur nú fyrir Alþingi og hvaða hagsmuni íslensk fyrirtæki hafa af því að frumvarpið verði samþykkt. 

Dagskrá: 

Hvað er bókun 35 og hvað þýðir hún fyrir íslenska hagsmuni?
Gunnar Þór Pétursson, prófessor í lögfræði við Háskólann í Reykjavík og formaður starfshóps sem samdi frumvarp utanríkisráðherra

Af hverju eru það hagsmunir íslenskra fyrirtækja að Alþingi samþykki frumvarpið um bókun 35?
Páll Rúnar M. Kristjánsson, hæstaréttarlögmaður og formaður ÍEV

Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og ÍEV.

Íslensk-evrópska verslunarráðið er eitt af þremur millilandaviðskiptaráðum, sem Félag atvinnurekenda rekur. Sérstakt viðfangsefni ráðsins er að beita sér fyrir því að rekstur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið gangi sem best og að allir aðilar samningsins standi við skuldbindingar sínar samkvæmt honum.

Nýjar fréttir

Innskráning