![IMG_4829](https://atvinnurekendur.is/wp-content/uploads/2022/11/IMG_4829-300x245.jpg)
Stjórn og framkvæmdastjóri Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins tóku í morgun á móti viðskiptasendinefnd frá Dalian-borg í Kína. Á fundinum kom fram áhugi Kínverjanna á auknum viðskiptum við Ísland, meðal annars fjárfestingum í ferðaþjónustu og kaupum á makríl af íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum.
Dalian er ein helsta hafnarborgin í Norðaustur-Kína og mikil flutninga- og fjármálamiðstöð. Þar er ennfremur rekinn öflugur sjávarútvegur og fiskvinnsla. Zhang Kai Hua, formaður Viðskiptaráðs Dalian, sagði á fundinum að mikil tækifæri gætu falizt í viðskiptum við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki, ekki sízt kaupum á gæðahráefni til vinnslu. Þar voru tegundir eins og lax og makríll nefndar sem dæmi.
Zhang sagði að ráðið vildi efla áhuga ferðamanna frá Dalian á Íslandsferðum. Þá sagði hann kínverska fjárfesta áhugasama um að fjárfesta í innviðum ferðaþjónustu á Íslandi, til dæmis hótelbyggingum.
![IMG_1474 (1)](https://atvinnurekendur.is/wp-content/uploads/2022/11/IMG_1474-1-300x198.jpg)
Í viðskiptasendinefndinni var meðal annarra Ding Weili, stjórnandi hjá Weally, sem er einn af stærstu framleiðendum vökvakerfa í heiminum. Hann lýsti áhuga sínum á að mynda tengsl við hugsanlega viðskiptavini á Íslandi.
Viðskiptaráð Dalian er deild í Viðskiptaráði Kína (China Council for the Promotion of International Trade). Skrifstofa Viðskiptaráðs Dalian er reiðubúin að koma áhugasömum íslenskum fyrirtækjum í samband við kínversk fyrirtæki í Dalian. Lin Lin, einn af fulltrúunum í viðskiptasendinefndinni, er reiðubúin að miðla fyrirspurnum. Senda má henni póst á netfangið linlin@ccpit.org.