
Íslensk-kínverska viðskiptaráðið fagnar 20 ára afmæli í mánuðinum. Af því tilefni efnir ráðið til málþings í samstarfi við sendiráð Alþýðulýðveldisins Kína og Félag atvinnurekenda um reynsluna af fríverslunarsamningi Íslands og Kína fyrsta árið sem hann hefur verið í gildi. Samningurinn gekk í gildi 1. júlí 2014. Málþingið verður haldið í húsnæði viðskiptadeildar sendiráðsins í Garðastræti 41 kl. 15-17 fimmtudaginn 29. október. Að loknu málþinginu verður móttaka þar sem útnefndur verður fyrsti heiðursfélagi ÍKV.
Dagskrá:
15.00 Ársæll Harðarson, formaður Íslensk-kínverska viðskiptaráðsins, býður gesti velkomna.
15.10 Liu Mingming, viðskiptafulltrúi kínverska sendiráðsins: Facilitating business opportunities through the FTA
15.25 Bergþór Magnússon, lögfræðingur á viðskiptasviði utanríkisráðuneytisins: Hvernig nýtast tækifærin í fríverslunarsamningi Íslands og Kína?
15.40 Jóhann Freyr Aðalsteinsson, tollasérfræðingur hjá Tollstjóra: Helstu áskoranir við framkvæmd fríverslunarsamningsins
15.55 Birgir Bjarnason, formaður FA og framkvæmdastjóri Íslensku umboðssölunnar: Áhrif fríverslunarsamningsins á útflutning til Kína
16.10 Sigtryggur R. Eyþórsson, framkvæmdastjóri Xco ehf: 40 ára reynsla af viðskiptum við Kína – hverju breytti fríverslunarsamningurinn?
16.30 Spurningar og svör
17.00 Móttaka í boði kínverska sendiráðsins
Fundarstjóri: Jónína Bjartmarz, stjórnarmaður í ÍKV
Skráning á málþingið er hér að neðan. Vinsamlegast skráið ykkur fyrir lok dags 27. október. Athugið að takmarkaður fjöldi sæta er í boði.