Félag atvinnurekenda efnir til morgunverðarfundar um útboðsmál ríkisins þriðjudaginn 17. maí undir yfirskriftinni „Er ríkið lélegur neytandi? Vannýtt tækifæri í innkaupum og útboðsmálum ríkisins.“
Útboðsmál ríkisins hafa verið í brennidepli að undanförnu. Hægt er að spara skattgreiðendum háar fjárhæðir með skilvirkum útboðum. Útboð á vegum ríkisins þjóna jafnframt þeim tilgangi að ýta undir skilvirka samkeppni, neytendum til hagsbóta. Þessi mál verða rædd frá ýmsum hliðum á fundi FA.
Dagskrá:
Bruðl að bjóða ekki út
Guðlaugur Þór Þórðarson varaformaður fjárlaganefndar Alþingis
Hvar er pottur brotinn? Litið yfir úrskurðarframkvæmd kærunefndar
Skúli Magnússon, héraðsdómari og formaður kærunefndar útboðsmála
Topp tíu listinn – hvaða opinberar stofnanir fá flestar kærur vegna innkaupa?
Inga Skarphéðinsdóttir, lögfræðingur Félags atvinnurekenda
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Fundurinn er haldinn kl. 8.30 – 10.00 í fundarsal Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar, Kringlunni 7. Léttur morgunverður er í boði á fundinum, sem er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.
Skráning á fundinn hér neðar á síðunni. Athugið að velja réttan viðburð.