Fyrsti fundur Félags atvinnurekenda með frambjóðendum fyrir þingkosningarnar verður haldinn kl. 8.30 til 10 miðvikudaginn 5. október í fundarsal félagsins í Húsi verslunarinnar. Fundarefnið er landbúnaðar- og tollamál.
Eftirfarandi frambjóðendur taka þátt í fundinum:
- Björt Ólafsdóttir, Bjartri framtíð
- Þórunn Egilsdóttir, Framsóknarflokki
- Smári McCarthy, Pírötum
- Árni Páll Árnason, Samfylkingu
- Guðlaugur Þór Þórðarson, Sjálfstæðisflokki
- Pawel Bartoszek, Viðreisn
- Kolbeinn Óttarsson Proppé, Vinstrihreyfingunni – grænu framboði
Í upphafi fundar fer Páll Rúnar M. Kristjánsson, lögmaður FA, stuttlega yfir helstu áherslur félagsins í landbúnaðar- og tollamálum.
Næst eru frambjóðendur beðnir að svara þremur spurningum, sem FA sendi flokkunum fyrir fundinn og hafa þeir til þess tvær mínútur hver. Spurningarnar eru eftirfarandi:
- Hvaða breytingar á að setja í forgang við endurskoðun búvörusamninganna?
- Vill þinn flokkur viðhalda því fyrirkomulagi að bjóða upp tollkvóta (heimildir til að flytja inn búvörur á lágum eða engum tollum)?
- Eru það verndarsjónarmið sem búa að baki 76% tolli á franskar kartöflur? Mun þinn flokkur beita sér fyrir afnámi þessara gjalda þegar fyrir liggur að nær ekkert íslenskt hráefni er í innlendri framleiðslu?
Að loknum þremur umferðum þar sem frambjóðendurnir svara spurningunum gefst tími fyrir spurningar úr sal og almennar umræður.
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA. Fundirnir verða í beinni útsendingu á Facebook-síðu félagsins.
Léttur morgunverður er í boði á fundinum. Skráning á fundinn hér að neðan.