Félag atvinnurekenda efnir til morgunverðarfundar um jafnlaunavottun í fyrirtækjum kl. 8.30 til 10 þriðjudaginn 10. janúar næstkomandi. Þar verður leitast við að svara algengum spurningum um jafnlaunavottun eins og þessum:
– Hvað felst í jafnlaunavottun?
– Hvað þurfa fyrirtæki að gera til að fá vottunina?
– Er ferlið tímafrekt?
– Hvað kostar að fá jafnlaunavottun?
– Hvað græða fyrirtæki á jafnlaunavottun?
Dagskrá:
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR: Áfangasigrar
Einar Mar Þórðarson, sérfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneytinu: Jafnlaunastaðall – tækifæri eða kvöð?
Anna Kristín Kristjánsdóttir, ráðgjafi hjá Hvíta húsinu og stjórnarmaður í FA: Jess við erum jöfn!, reynslusaga Hvíta hússins
Fundarstjóri er Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA.
Fundurinn verður haldinn í húsakynnum Félags atvinnurekenda á 9. hæð í Húsi verslunarinnar. Léttur morgunverður er í boði á fundinum. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill á meðan húsrúm leyfir.
Skráning á fundinn hér að neðan.