Ári hanans fagnað 3. febrúar

24.01.2017
Zhang Weidong
Zhang Weidong sendiherra.

Í tilefni af kínversku áramótunum munu Íslensk-kínverska viðskiptaráðið og Kínversk-íslenska menningarfélagið fagna ári hanans föstudaginn 3. febrúar  kl. 19.00 á Veitingahúsinu Tian, Grensásvegi 12, 108 Reykjavík. Nýárskvöldverður ÍKV og KÍM er orðinn árviss viðburður. Borðhaldið hefst kl. 19.30.

Heiðursgestur verður Zhang Weidong, sendiherra Kína á Íslandi og flytur hann ræðu kvöldsins.

Matseðill:

Blönduð sjávarréttasúpa
Djúpsteikt ýsa með sætri engifersósu
Kjúklingur með drekasósu
Svínakjöt með appelsínusósu
Djúpsteikar rækjur með súrsætri sósu
Nautakjöt í svartpiparsósu
Heimagert tofu með grænmeti í ostrusósu
Steikt spergilkál með hvítlauk
Dumplings (fylltir hveitisnúðar)
Hrísgrjón, te og ávextir

Búist er við talsverðri aðsókn og er fólk því vinsamlegast beðið að panta tímanlega.  Pantanir má senda á netfangið kim@kim.is eða í síma 897 3766. Pantanir berist í síðasta lagi miðvikudaginn 1. febrúar fyrir kl. 22.00.

Nýjar fréttir

21. desember 2024
21. desember 2024

Innskráning