Nýr kjarasamningur FA við Rafiðnaðarsamband Íslands vegna rafiðnaðarmanna verður kynntur á rafrænum félagsfundi þriðjudaginn 26. mars. Fundurinn verður haldinn á Teams kl. 10.30-11. Skráning á fundinn er hér að neðan og fá skráðir félagsmenn sendan hlekk í tíma.
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA mun fara yfir efni samningsins.
Samningurinn var undirritaður í morgun. Samkvæmt lögum FA skulu allir kjarasamningar við samtök launþega undirritaðir með fyrirvara um samþykki stjórnar félagsins. Samþykktan samning skal kynna á almennum félagsfundi eins fljótt og unnt er. Samningsaðilar þurfa að tilkynna um afgreiðslu samningsins fyrir 5. apríl nk.