Tollamál, heima og heiman

Tollastríð Donalds Trump, sem hófst í ársbyrjun, setti gamalt baráttumál FA, lækkun tolla í alþjóðaviðskiptum, í nýtt ljós. Segja má að það hafi orðið enn skýrara en áður hversu lítið vit er í tollum og öðrum hömlum á alþjóðaviðskipti. FA hvatti íslensk stjórnvöld til að mæta ekki tollum Trumps með gagnaðgerðum, heldur beita sér fremur fyrir aukinni fríverslun við önnur ríki en Bandaríkin.

FA og millilandaviðskiptaráð félagsins efndu til fundar í lok mars um tollastefnu Trumps og áhrif hennar á Ísland. Mikill áhugi var á fundinum og fullt út úr dyrum.

FA vakti athygli á ýmsum hliðum tollamála á árinu, til dæmis á háum tollum á ýmsum vörum, sem alls ekki eru framleiddar á Íslandi. Tollarnir vernda fyrir vikið enga innlenda framleiðslu. FA birti tölur um að í tollkvótaútboði í maí hrepptu innlendar afurðastöðvar 60 prósent ESB-tollkvótans fyrir kjötvörur, þrátt fyrir fullyrðingar um að sömu fyrirtækjum standi ógn af innflutningi kjöts. Um síðastnefnda málið varð til lítil ritdeila í Bændablaðinu.

Fréttir um málefnið

5. mars 2025

Innskráning