Haustferð FA farin á Suðurland

Stjórn FA ákvað að taka upp þá nýbreytni að efna til haustferðar félagsmanna. Í þessari fyrstu ferð, sem var farin í október, var ekið til Þorlákshafnar og félagsmenn FA þar í bæ heimsóttir, skipafélögin Smyril Line og Torcargo. Eftir heimsókn í þetta mikla uppgangspláss var ekið til Selfoss, þar sem Friðrik Ingi Friðriksson formaður félagsins tók á móti félagsmönnum í verslun Aflvéla. Loks var farið að Hótel Vatnsholti í Flóa, þar sem félagsmennirnir Jóhann Helgi Hlöðversson og Margrét Ormsdóttir tóku á móti hópnum með kvöldverði.

Fréttir um málefnið

Innskráning