Vill ríkisstjórnin flækja skattkerfið með óhollustuskatti?

18.02.2026

Félag atvinnurekenda gagnrýnir eindregið þær hugmyndir, sem koma fram í drögum að þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um aðgerðaáætlun gegn offitu, að leggja á einhvers konar óhollustuskatt en lækka í staðinn álögur á ávexti og grænmeti. Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA ræddi áformin í viðtali við fréttaskýringaþáttinn Þetta helst á RÚV og í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni.

Ólafur sagðist eiga bágt með að trúa að ríkisstjórnin vildi gera alvöru úr þeim hugmyndum sem fram koma í drögunum. „Það kæmi mér stórlega á óvart. [Ríkisstjórnin] lýsir því yfir að hún vilji einfalda regluverk og einfalda lífið, ekki síst fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. Þessar breytingar myndu flækja málið alveg stórkostlega og líka þýða fleiri ríkisstarfsmenn og meiri kostnað hjá ríkinu, sem er annað sem ríkisstjórnin segist vilja draga úr, af því að þetta er svo ofboðslega flókið í framkvæmd. Það er miklu, miklu nær að nota fræðslu og forvarnir í þessum efnum,“ segir Ólafur.

Ólafur nefndi í viðtalinu við Reykjavík síðdegis áreiðanlegar tölur um þróun gosneyslu á Íslandi, byggðar á gögnum úr kassakerfum verslana. Árið 2011 voru 59% gosneyslu landans sykrað gos. Á síðasta ári var hlutfallið komið niður í 28%. Þetta er þróun, sem á sér stað án opinberrar neyslustýringar, einfaldlega vegna þess að gosdrykkjaframleiðendur mæta óskum neytenda, sem eru meðvitaðri um holla kosti. „Hins vegar er ég ekki í neinum vafa um að ef það hefði verið sykurskattur hefði verið í gildi myndu talsmenn hans þakka honum þennan árangur,“ sagði Ólafur í þættinum.

Þetta helst á RÚV
Reykjavík síðdegis á Bylgjunni

Nýjar fréttir

Innskráning