Félag atvinnurekenda fagnar því að tillögur FA og Íslensk-evrópska verslunarráðsins til stjórnvalda um einföldun regluverks hafi verið teknar upp í aðgerðaáætlun vegna atvinnustefnu Íslands, sem birt var í dag. Þær snúa annars vegar að því að innleiðing einfaldaðs Evrópuregluverks verði sett í forgang og hins vegar að því að koma í veg fyrir gullhúðun EES-reglna.
FA og Íslensk-evrópska verslunarráðið lögðu í lok febrúar fram tillögur til stjórnvalda um innleiðingu einföldunargerða og aðgerðir gegn gullhúðun. Þar var lagt til að lagasetning Evrópusambandsins um einföldun regluverks, sem varðar EES-samninginn, fengi forgang í sameiginlegu EES-nefndinni, hjá Stjórnarráðinu og í meðförum Alþingis. Tillögum starfshóps utanríkisráðherra um aðgerðir gegn gullhúðun EES-reglna yrði hrint í framkvæmd. Loks yrði ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur skipuð á ný til samræmis við lög nr. 27/1999 og fengið hlutverk við að fylgja því eftir að gullhúðun sé ekki beitt við innleiðingu EES-reglna, eða þá að settur yrði á fót nýr samráðsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda sem hafi sama hlutverk.
Þessar tillögur hafa í öllum meginatriðum verið teknar inn í fyrstu aðgerð aðgerðaáætlunar stjórnvalda, sem kölluð er kerfisbundin einföldun regluverks fyrir íslenskt atvinnulíf, en þar segir: „Þess verður gætt við upptöku og innleiðingu nýrra EES-reglna að þar sé ekki gengið lengra í íþyngjandi kröfum á atvinnulífið en nauðsyn krefur. Einföldun reglna sem nú er í undirbúningi innan Evrópusambandsins verður sett í forgang þegar kemur að upptöku í EES-samninginn og innleiðingu hér á landi. Jafnframt verður farið kerfisbundið yfir íslenskt regluverk að öðru leyti eftir þörfum. Gæðaeftirlit vegna nýrrar löggjafar og reglusetningar verður bætt, þ.m.t. verður hugað að hlutverki ráðgjafarnefndar um opinberar eftirlitsreglur.“
Mikilvægt að fylgja verkefninu fast eftir
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri FA og ÍEV, segir að þessi viðbrögð við tillögum samtakanna séu ánægjuleg. „Við höfum fylgt tillögunum eftir með fundahöldum með utanríkisráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu og formanni utanríkismálanefndar Alþingis, auk samskipta við forsætisráðuneytið. Við höfum lýst áhyggjum okkar af því að þrátt fyrir falleg markmið þyngist regluverk íslenskra fyrirtækja, ekki síst þeirra minni og meðalstóru, sífellt og að tækifærin til einföldunar regluverks séu ekki gripin. Að okkar mati er mikilvægt að einföldun regluverks sé ekki bara markmið á blaði, og gömlum ósiðum sé ekki viðhaldið, t.d. með sífelldri gullhúðun Evrópuregluverksins, heldur sé verkefninu fylgt fast eftir. Þess vegna höfum við lagt til að settur verði á fót samráðsvettvangur atvinnulífsins og stjórnvalda til að fylgjast með því að markmiðin náist.“
Forsvarsmenn FA og ÍEV funduðu fyrr í vikunni um málið með atvinnuvegaráðuneytinu og segist Ólafur eftir þann fund vongóður um að slíkur samráðsvettvangur verði settur á fót mjög bráðlega, annað hvort með því að ráðgjafarnefndin um opinberar eftirlitsreglur verði skipuð á ný, eða með öðru formi.