FA og Vörustjórnunarfélag Íslands efna til námskeiðs 19. maí næstkomandi um „Vörustjórnun á tímamótum – frá excel til gervigreindar“. Leiðbeinandi er Stefán Baxter framkvæmdasjtóri Snjallgagna. Námskeiðið verður haldið í fundarsal FA í Skeifunni 11b kl. 9-12.
Á námskeiðinu verður farið yfir ýmsa möguleika þar sem gervigreindin nýtist við vörustjórnun:
– Minni birgðir – betri spár
– Frá excel til gervigreindar – næsta skref við birgðastýringu
– Ófyrirsjáanleg eftirspurn – áhrif ytri þátta við birgðastýringu
– Rauntímagögn og ytri breytur – ný vídd í birgðastýringu og við gerð spálíkana
– Sjálfvirkar skráningar gagna – tengingar við gagnalaugar
Námskeiðið er sérstaklega ætlað sérfræðingum í vörustjórnun sem hafa áhuga á að kynna sér og taka þátt í innleiðingu næstu kynslóðar hugbúnaðar í vörustjórnun. Félagsmenn í FA og Vörustjórnunarfélaginu fá afslátt af námskeiðsgjaldi.
Stefán Baxter er frumkvöðull með 35 ára reynslu í hugbúnaðarþróun og upplýsingatækni og sérhæfður í streymandi gögnum og gervigreind.
Skráning á námskeiðið er á skraning@logistics.is