Grein Ólafs Stephensen framkvæmdastjóra FA í Morgunblaðinu 15. október 2026.
Morgunblaðið greindi frá því í síðustu viku að Íslandspóstur telji hreinan kostnað vegna óskráðra erlendra bréfasendinga vera „hundruð milljóna króna“ árlega og að fyrirtækið hafi farið fram á við Byggðastofnun, sem fer með eftirlit með póstmarkaðnum, að því verði bættur sá kostnaður af fé skattgreiðenda. Bréfin sem um ræðir munu vera jólakort, sektarboð og ýmis gluggapóstur sem landsmönnum berst frá útlöndum.
Blaðið getur þess réttilega að í núgildandi póstlögum er beinlínis tekið fyrir að skattgreiðendur standi undir slíkum kostnaði; póstrekandi sem sinnir alþjónustu getur samkvæmt þeim ekki farið fram á fjárframlag úr ríkissjóði vegna erlendra póstsendinga. Þegar af þeirri ástæðu verður að teljast sérstakt að Íslandspóstur óski eftir því að skattgreiðendur hlaupi undir bagga vegna útlendu jólakortanna og hraðasektanna. Löggjöfin gerir einfaldlega ekki ráð fyrir slíku.
Hvaða kostnaði kæmist Pósturinn hjá?
Hitt er svo annað mál, hvaða kostnað óskráðu útlendu bréfin búa til í raun hjá ríkisfyrirtækinu, eins og vikið var að í umfjöllun Morgunblaðsins. Jú, það þarf vissulega að koma þeim til skila til móttakenda og það kostar peninga. En það er ekki þar með sagt að sá kostnaður sé allur viðbótarkostnaður sem Pósturinn gæti losnað við.
Í viðauka við lögin um póstþjónustu er þeirri aðferðafræði lýst, sem nota á við útreikning á alþjónustubyrði póstrekanda á borð við Íslandspóst. Samkvæmt lagatextanum er hreinn kostnaður alþjónustuskyldna „allur kostnaður sem tengist og er óhjákvæmilegur við rekstur alþjónustu“. Hann er reiknaður sem mismunur á kostnaði alþjónustuveitanda með skyldunni og kostnaði sama póstrekanda án hennar. Þá skal „vandlega […] hugað að því að meta rétt kostnað sem alþjónustuveitandi hefði kosið að komast hjá“.
Lykilspurningin við mat á alþjónustubyrði er því ekki hvernig núverandi rekstrarkostnaður skiptist milli þjónustuflokka, heldur hvaða kostnað Pósturinn gæti í raun losnað við ef viðkomandi alþjónustuskylda væri ekki fyrir hendi. Jafnframt þarf að taka tillit til tekna sem féllu brott og annars ávinnings sem fyrirtækið hefur af skyldunni.
Erlend óskráð bréf eru flokkuð og borin út í sama kerfi, á sömu leiðum, af sama starfsfólki og á sömu dögum og innlend bréf og pakkar. Pakkar eru bornir út fimm daga vikunnar á viðskiptalegum forsendum. Ferðir, bifreiðar, starfsstöðvar og stöðugildi hjá Íslandspósti yrðu því að öllum líkindum í meginatriðum óbreytt þótt erlendu bréfin hyrfu – og reyndar líka ef innlend bréf hyrfu. Vissulega myndi einhver kostnaður sparast við flokkun og meðhöndlun bréfanna, en erfitt er að sjá hvernig kostnaður sem raunverulega mætti komast hjá geti numið „hundruðum milljóna“ á ári.
Fer Byggðastofnun eftir lögunum?
Í kvörtun til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) vegna ólögmætrar ríkisaðstoðar við Íslandspóst hefur Félag atvinnurekenda fært rök fyrir því að við ákvarðanir um útgjöld skattgreiðenda vegna alþjónustuskyldna Íslandspósts horfi Byggðastofnun framhjá þeirri aðferðafræði, sem lýst er með skýrum hætti í póstlögunum. Vegna þess að stofnunin hefur neitað að opinbera kostnaðarlíkan Íslandspósts er ýmislegt á huldu um það fyrir hvað nákvæmlega skattgreiðendur borga hátt í 800 milljónir króna á ári. Slík leynd fer reyndar líka gegn póstlögunum, sem kveða skýrt á um að ríkisstuðningurinn skuli vera gegnsær.
Sterkar vísbendingar eru hins vegar um að þar sé ekki verið að meta hvernig rekstur Íslandspósts myndi breytast ef alþjónustuskyldan væri ekki fyrir hendi, heldur fyrst og fremst hvernig núverandi kostnaðarlíkan ríkisfyrirtækisins úthlutar kostnaði á mismunandi þjónustu. Slík kostnaðarskipting getur verið gagnlegt hjálpartæki, en hún segir ekki ein og sér til um hreinan kostnað alþjónustuskyldunnar. Við útreikning hans þarf jafnframt að taka tillit til tekna, ávinnings af skyldunni og möguleika á hagkvæmari rekstri án hennar.
Sé sameiginlegum rekstrarkostnaði einfaldlega úthlutað á þjónustuflokka og niðurstaðan síðan lögð til grundvallar kröfum um ríkisframlög getur það hækkað reikninginn til skattgreiðenda duglega og stuðlað að því að Pósturinn fái mun ríkulegri meðgjöf í samkeppni við einkaaðila en póstlögin og EES-samningurinn gera ráð fyrir. Að þessu meðal annars beinist rannsókn ESA, sem FA hefur fengið upplýst að sé í forgangi hjá stofnuninni og niðurstöðu að vænta með vorinu.
Það er út í hött hjá stjórnendum Íslandspósts að fara fram á greiðslur frá skattgreiðendum vegna erlendu jólakortanna, sektarboðanna og alls hins, þegar lögin heimila ekki slíkar greiðslur. Og það væri enn fráleitara ef Byggðastofnun eða önnur stjórnvöld kæmu til móts við þær kröfur, að minnsta kosti áður en niðurstaða ESA liggur fyrir.