Morgunfundur 11. nóvember: Gervigreindin er mætt í þjónustuverið. Getur hún nýst þínu fyrirtæki?

30.10.2026

Síminn hringir, tölvupóstarnir hrannast upp og viðskiptavinurinn bíður eftir svari. Hvernig getur gervigreind hjálpað fyrirtækinu þínu að svara hraðar, létta á starfsfólki og skapa ánægðari viðskiptavini? Halló og Félag atvinnurekenda bjóða til hagnýts morgunfundar miðvikudaginn 11. nóvember kl. 8.30–10.00 í fundarsal FA í Skeifunni 11b. Þar skoðum við hvernig fyrirtæki geta tekið fyrstu skrefin í að nýta gervigreind í þjónustu við viðskiptavini, í síma, tölvupósti, netspjalli og fleiri samskiptaleiðum.

Hápunktur fundarins eru raunveruleg dæmi frá viðskiptavinum Halló þar sem þjónustuhermar eru þegar mættir til vinnu. Þjónustuhermar eru stafrænir þjónustufulltrúar sem nýta gervigreind til að svara erindum viðskiptavina. Halló sýnir hvernig þeir nýtast í daglegum rekstri og hvað önnur fyrirtæki geta lært af reynslunni.

Á dagskrá

Fyrstu skrefin að ánægðari viðskiptavinum með gervigreind
Andri Árnason hjá Halló fer yfir hvar er skynsamlegt að byrja, hvaða verkefni henta og hvernig gervigreind og starfsfólk geta unnið saman að betri þjónustu. Hvernig kemur þú fyrstu lausninni í notkun og hvað þarf að vera til staðar svo hún gagnist viðskiptavinum þínum?

Persónuvernd, gagnaöryggi og trúnaður
Ásdís Eir Guðmundsdóttir lögfræðingur hjá Félagi atvinnurekenda fjallar stuttlega um hvað fyrirtæki þurfa að hafa í huga við notkun gervigreindar og hvernig einfaldar vinnureglur geta stutt við ábyrga innleiðingu.

Þjónustuhermar í vinnu: Raunveruleg dæmi frá Halló
Hvernig gengur þetta fyrir sig þegar viðskiptavinur hefur samband? Tinna R. Freysdóttir hjá Halló fer yfir dæmi úr rekstri viðskiptavina, sýnir þjónustuherma að störfum og deilir reynslu af því að koma þeim í vinnu. Freyr Hákonarson hjá Kötlu Fitness tekur þátt í umræðum um reynslu fyrirtækisins af því að nota þjónustuherma.

Fyrir hverja er fundurinn?
Fundurinn er ætlaður stjórnendum, eigendum fyrirtækja og þeim sem bera ábyrgð á þjónustu við viðskiptavini. Engin tæknileg sérþekking er nauðsynleg. Áherslan er á skýr dæmi og hagnýt fyrstu skref sem fólk getur heimfært á sinn rekstur.

Skráning á fundinn er hér að neðan. Léttur morgunverður er í boði. Inngangur í Skeifuna 11b er sunnan megin, á milli Lyfju og Zo-on.

Skráning á morgunverðarfund um gervigreind og þjónustu við viðskiptavini 11. nóvember 2026

Nýjar fréttir

Innskráning