Aðalfundur Félags atvinnurekenda fer fram á Grand Hóteli Reykjavík við Sigtún kl. 14 fimmtudaginn 26. febrúar næstkomandi.
Dagskráin er eftirfarandi, skv. lögum FA:
1. Skýrsla stjórnar um starf félagsins árið 2025.
2. Ársreikningur lagður fram til samþykktar.
3. Fjárhagsáætlun og tillaga um félagsgjöld lögð fram til samþykktar.
4. Kjör þriggja meðstjórnenda í stjórn félagsins.
5. Kjör skoðunarmanns.
Stjórnarkjör
Að þessu sinni skal kjósa þrjá meðstjórnendur í stjórn félagsins til tveggja ára. Framboðsfrestur rann út í dag.
Eftirfarandi framboð bárust, öll frá núverandi stjórnarmönnum sem voru kjörnir á aðalfundi 2024:
Anna Kristín Kristjánsdóttir, stjórnarmaður og eigandi í Hvíta húsinu, varaformaður FA.
Guðmundur R. Sigtryggsson, framkvæmdastjóri XCO og Njóta ferða.
Leifur Örn Leifsson, framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Innness.
Þessi þrjú eru því sjálfkjörin í stjórn.
Á síðasta aðalfundi voru kjörin í stjórn til tveggja ára og sitja því áfram í stjórn:
Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi Aflvéla og Burstagerðarinnar, formaður FA.
Dagný Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ólafs Gíslasonar & co. og Eldvarnamiðstöðvarinnar.
Lilja Dögg Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri Lyfjasviðs Icepharma.
Engar tillögur bárust um breytingar á lögum félagsins.
Skráning
Skráning á aðalfundinn fer fram hér að neðan. Við minnum jafnframt á opinn fund, Veikindi og vinnumarkaður, sem fer fram í beinu framhaldi af aðalfundinum, kl. 15. Að loknum fundunum verður móttaka með léttum veitingum í boði FA. Við hvetjum félagsmenn til að skrá sig á báða fundina og lyfta glasi með okkur að þeim loknum.