Félagsmenn í FA eru almennt ánægðir með þjónustu félagsins og baráttu fyrir hagsmunum félagsmanna. Í könnun, sem gerð var meðal félagsmanna í aðdraganda aðalfundar félagsins, sögðust 90% ánægð með starf félagsins í heild, sem er svipuð niðurstaða og í fyrra.
Spurt var um ýmsa þætti í þjónustu FA. Þeir mest notuðu eru aðstoð við hagsmunagæslu gagnvart stjórnvöldum, lögfræðiþjónustan og upplýsingapóstar FA til félagsmanna um ýmis gagnleg málefni. 76% sögðust ánægð eða mjög ánægð með lögfræðiþjónustuna, 96% lýstu ánægju með upplýsingapóstana og 82% voru ánægð eða mjög ánægð með aðstoð við hagsmunagæslu. Færri nýttu þjónustu á borð við örnámskeið á netinu, vörustjórnunarnámskeið og félagsfundi, en ánægjan með þá þjónustuþætti er almennt yfirgnæfandi eins og sjá má á myndinni hér að neðan.

Ánægja með frammistöðuna í helstu baráttumálum
Spurt var út í frammistöðu FA í ýmsum baráttumálum og var almennt yfirgnæfandi ánægja með hana. Mest ánægja var með baráttuna fyrir lægri fasteignasköttum, einfaldara regluverki og breytingum á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna – um og yfir 90% – en minnst ánægja var með frammistöðu félagsins í að fá samkeppnisundanþágur í búvöruframleiðslu afnumdar, búvörutolla og áfengisskatta lækkaða, eða tæplega 70%.
Sýnilegt félag með jákvæða ímynd
Þegar spurt er hvort félagsmönnum þyki FA sýnilegt í baráttu sinni fyrir félagsmenn, segjast 84% sammála eða mjög sammála þeirri fullyrðingu. 90% þykir ímynd félagsins jákvæð. Spurt er um afstöðu til fullyrðingarinnar „Félagsgjöld í FA eru sanngjörn miðað við ávinning míns fyrirtækis af félagsaðild“ og segjast 77% sammála eða mjög sammála henni, en 7% eru ósammála eða mjög ósammála.

Könnunin var gerð dagana 3.-10. febrúar, á netinu. Svör bárust frá 61 af 153 félagsmönnum með beina félagsaðild, eða 40%. Það er svipað svarhlutfall og undanfarin ár. Svörin verða ekki rakin beint til einstakra fyrirtækja eða svarenda.