Félagsmenn í FA eru almennt ánægðir með þjónustu félagsins og baráttu fyrir hagsmunum félagsmanna. Í könnun, sem gerð var meðal félagsmanna í aðdraganda aðalfundar félagsins, sögðust 90% ánægð með starf félagsins í heild, sem er svipuð niðurstaða og í fyrra.
Spurt var út í frammistöðu FA í ýmsum baráttumálum og var almennt yfirgnæfandi ánægja með hana. Mest ánægja var með baráttuna fyrir lægri fasteignasköttum, einfaldara regluverki og breytingum á starfsumhverfi ríkisstarfsmanna – um og yfir 90% – en minnst ánægja var með frammistöðu félagsins í að fá samkeppnisundanþágur í búvöruframleiðslu afnumdar, búvörutolla og áfengisskatta lækkaða, eða tæplega 70%.
Félagsmönnum þykir almennt félagið sýnilegt í baráttu sinni fyrir þeirra hönd, ímynd þess vera jákvæð og félagsgjöldin sanngjörn miðað við ávinninginn af félagsaðild.