Á aðalfundi FA í febrúar var Friðrik Ingi Friðriksson, forstjóri og eigandi Aflvéla og Burstagerðarinnar, kjörinn formaður félagsins. Í tengslum við aðalfundinn hélt FA opið málþing um samkeppni á matvörumarkaði, sem var fjölsótt og fékk jafnframt ágæta umfjöllun í fjölmiðlum.