FA gagnrýndi harðlega framferði þýska fyrirtækisins Heinemann á Keflavíkurflugvelli, en það fyrirtæki varð hlutskarpast í útboði Isavia á rekstri Fríhafnarinnar. FA benti á að framferði fyrirtækisins gagnvart litlum, innlendum framleiðendum á t.d. áfengi og snyrtivörum væri ekki í neinu samræmi við útboðsskilmálana, þar sem kveðið var á um samfélagslega ábyrgð gagnvart innlendum birgjum og minni fyrirtækjum. Birgjum voru hins vegar settir afarkostir, um að lækka verulega verð sitt eða missa ella einn sinn stærsta útsölustað.
FA gagnrýndi stjórnvöld einnig eindregið fyrir að hafa afhent Heinemann einokunar- og markaðsráðandi stöðu á Keflavíkurflugvelli án þess að hafa gert nokkrar ráðstafanir til að hún væri ekki misnotuð. Félagið benti á að stjórnvöld hefðu ekki brugðist við tilmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar til að tryggja heilbrigða samkeppni á flugvellinum.