FA lagði á árinu sérstaka áherslu á aðhald að ríkisstofnunum, sem ástunda samkeppni við einkaaðila samhliða sínu lögbundna hlutverki og bar sú barátta talsverðan árangur.
Þannig dró Veðurstofan til baka tilboð í verkefni eftir að sýnt hafði verið fram á að stofnunin hafði hvorki farið að fyrirmælum laga né ákvörðun samkeppnisyfirvalda um aðskilnað samkeppnisrekstrar frá almennum rekstri. Samkeppniseftirlitið hlutaðist til um að Veðurstofan kæmi þeim málum í rétt horf.
FA hvatti jafnframt til þess að endurmenntunarstarfsemi Háskóla Íslands og annarra háskóla, sem þiggja opinber fjárframlög, yrði fjárhagslega aðskilin öðrum rekstri. Sú starfsemi er í beinni samkeppni við starfsemi félagsmanna FA, einkarekinna fræðslufyrirtæja. Samkeppniseftirlitið gaf, að undirlagi FA, út leiðbeiningar um hvernig ætti að standa að slíkum aðskilnaði og lýsti HÍ því yfir að upplýsingar um fjárhagslegan aðskilnað yrðu birtar opinberlega í mars 2026. HA boðaði sömuleiðis að farið yrði að leiðbeiningunum. Ekki er komið í ljós hvernig aðrir háskólar bregðast við.