Áframhaldandi barátta fyrir virkri samkeppni í skipaflutningum

Félag atvinnurekenda hefur verið eina atvinnurekendafélagið sem berst ötullega fyrir virkri samkeppni í skipaflutningum og hélt félagið þeirri baráttu áfram á árinu.

Í byrjun árs vakti félagið athygli á ósvífnum hækkunum olíu- og umhverfisgjalda stóru skipafélaganna og hvatti félagsmenn sína til að kalla eftir rökstuðningi og skýringum þeirra.

FA vakti jafnframt athygli á því að samkeppnin við stóru skipafélögin kemur frá Þorlákshöfn, en þar starfa tveir félagsmenn FA í skipaflutningum, Torcargo og Smyril Line. FA skrifaði innviðaráðherra og hvatti til endurbóta á leiðinni um Þrengsla- og Þorlákshafnarveg. Sú vegtenging er síðri að gæðum en aðrar aðalleiðir á Suðvesturhorninu og þess vegna í raun samkeppnishindrun í vegi skipafélaganna í Þorlákshöfn. Benti FA á að bættar samgöngur við Þorlákshöfn væru samkeppnismál og ættu að vera liður í viðbrögðum stjórnvalda við tilmælum Samkeppniseftirlitsins um leiðir til að efla samkeppni í flutningum.

Framkvæmdastjóri FA og bæjarstjóri Sveitarfélagsins Ölfuss gengu á fund Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra til að ræða vegtengingu og hafnarframkvæmdir í Þorlákshöfn. Í ljósi jákvæðra viðbragða ráðherrans voru það vonbrigði þegar bæði vega- og hafnarframkvæmdum var raðað aftarlega í tillögu ráðherrans að samgönguáætlun, sem lögð var fyrir Alþingi í árslok.

Fréttir um málefnið

Innskráning