Árangur í litlum skömmtum í baráttu fyrir lægri fasteignasköttum

Áralöng barátta FA fyrir lækkun fasteignaskatta sveitarfélaga skilar árangri í litlum skömmtum. Eftir að fasteignamat ársins 2026 lá fyrir, sendi FA erindi á öll sveitarfélög landsins og hvatti þau til að lækka álagningarprósentu fasteignaskatta, en einnig til að skoða í samvinnu við ríkisvaldið kerfisbreytingar til langs tíma, sem myndu draga úr sveiflum í fasteignasköttum.

Mörg sveitarfélög brugðust jákvætt við áskorun félagsins hvað skattprósentuna varðar. Sjö af tólf stærstu sveitarfélögunum lækkuðu skatta. Eins og vanalega var aðgerðaleysi þess stærsta, Reykjavíkurborgar, æpandi. Ekkert gerðist hins vegar varðandi heildarendurskoðun kerfisins og verður hún áfram eitt af baráttumálum félagsins.

Fréttir um málefnið

2. júlí 2025

Innskráning