FA og ýmis fleiri samtök fyrirtækja, neytenda og launþega héldu áfram baráttu fyrir því að undið yrði ofan af þeim víðtæku undanþágum frá samkeppnislögum fyrir kjötafurðastöðvar, sem Alþingi samþykkti árið 2024 og ganga gegn hagsmunum bæði verslunar og almennings.
Eftir að Hæstiréttur felldi þann dóm í maí að lagabreytingin hefði staðist stjórnarskrána, skoruðu FA, SVÞ, VR og Neytendasamtökin á þingið að samþykkja frumvarp atvinnuvegaráðherra um að afturkalla lagabreytingarnar. Málið náði ekki fram að ganga á vorþinginu fremur en mörg önnur framfaramál, sem brunnu inni vegna málþófs á Alþingi. FA lýsti stuðningi við ný drög atvinnuvegaráðherra að frumvarpi til laga, sem ætlað var að sníða verstu vankantana af lagabreytingunum 2024.