FA hefur í meira en fimm ár leitast við að fá leiðrétta þá ákvörðun íslenskra stjórnvalda að tollflokka pitsuost með íblandaðri jurtaolíu í rangan tollflokk til að geta lagt á hann verndartolla, sem draga úr samkeppni. Á árinu dró til ýmissa tíðinda í því stóra prinsippmáli.
Í byrjun árs var upplýst að Ísland hefði í fyrsta sinn verið sett á lista Evrópusambandsins yfir lönd, sem beita útflytjendur innan sambandsins viðskiptahindrunum. Í febrúar komst Héraðsdómur Reykjavíkur að þeirri niðurstöðu að ríkinu hefði ekki verið óheimilt að tollflokka pitsuostinn eins og gert var, en þeim dómi hefur verið áfrýjað.
FA kvartaði vegna málsins til Eftirlitsstofnunar EFTA, sem komst að þeirri niðurstöðu í apríl að það væri brot á EES-samningnum að leggja tolla á vöruna sem um ræðir. Í september var upplýst að fjármálaráðherra hygðist leggja fram frumvarp um breytingu á tollflokkuninni en ekkert bólar á því frumvarpi enn sem komið er.