Eins og endranær var einföldun regluverks fyrirtækja eitt af helstu baráttumálum FA. Félagið gagnrýndi meðal annars að við framlagningu margs konar lagafrumvarpa vantaði allt mat á því hvort ný löggjöf yki reglubyrði fyrirtækja.
Tillögur FA um einföldun eftirlits voru hluti af hagræðingartillögunum, sem FA sendi stjórnvöldum í byrjun árs, en léttara eftirlit sparar mikla peninga bæði hjá fyrirtækjunum og ríkinu.
FA lagði ríka áherslu á að koma löggjöf um skil á jafnlaunaupplýsingum í sama horf og í nágrannaríkjunum. Þannig fagnaði félagið frumvarpi dómsmálaráðherra um afnám jafnlaunavottunar í núverandi mynd, en lagði til að gengið yrði lengra og skylda til skila á jafnlaunaskýrslum miðuð við 100 manns, líkt og í nýrri Evrópulöggjöf, sem innleidd verður á Íslandi innan skamms.