Ferðaskrifstofur nýr fyrirtækjahópur innan FA

Ferðaskrifstofum, sem skipuleggja ferðir til útlanda, fjölgaði verulega í hópi félagsmanna FA á árinu, ekki síst eftir fall Play Air, en í framhaldi af því komu upp ýmis álitamál, m.a. varðandi tryggingamál ferðaskrifstofa.

FA tók fyrir hönd þessa fyrirtækjahóps upp viðræður við atvinnuvegaráðuneytið um hvernig mætti skýra og einfalda það regluverk sem ferðaskrifstofum er ætlað að vinna eftir og gera stjórnsýslu Ferðamálastofu einfaldari, sanngjarnari og skilvirkari.

Fréttir um málefnið

Innskráning