Fríverslunarsamningur við Taíland skapar samkeppnisforskot

Íslensk-taílenska viðskiptaráðið, sem FA rekur, fagnaði því í byrjun árs að skrifað var undir nýjan fríverslunarsamning EFTA og Taílands. Félagið gekkst fyrir kynningu á samningnum, þar sem fram kom að samningurinn skapar íslenskum fyrirtækjum mikið samkeppnisforskot á Taílandsmarkaði, enda er landið ekki með aðra fríverslunarsamninga við ríki í Evrópu eða Norður-Ameríku.

Stjórn ÍTV fundaði í september með fulltrúum utanríkisviðskiptamiðstöðvar Taílands um nýja samninginn og þau tækifæri sem hann skapar.

Fréttir um málefnið

Innskráning