FA hélt áfram baráttu fyrir eðlilegri samkeppni á póstmarkaði, að ríkisfyrirtækinu Íslandspósti verði settar skorður í samkeppni við einkaaðila og að eftirlit með fyrirtækinu sé í lagi. Upp á hvort tveggja hefur sárlega vantað undanfarin ár.
Í mars var innviðaráðuneytinu send viðamikil kvörtun vegna vinnubragða Byggðastofnunar, sem heyrir undir ráðuneytið, en FA telur ljóst að eftirlitsstofnunin fari ekki að lögum í ákvörðunum sínum varðandi gjaldskrá Íslandspósts og framlag skattgreiðenda vegna meintrar alþjónustubyrðar. Engin svör bárust frá ráðuneytinu og undir lok ársins var Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) send kvörtun vegna sömu atriða, á þeim forsendum að í ákvörðunum og skorti á eftirliti Byggðastofnunar felist ólögmætur ríkisstuðningur við Íslandspóst, sem brjóti í bága við EES-samninginn.
FA gagnrýndi harðlega vinnubrögð Ríkisendurskoðunar, sem vísaði frá sér öllum helstu spurningum Alþingis um eftirlit með Íslandspósti. Félagið fagnaði því að nýr fjármálaráðherra vildi setja Póstinum skorður í samkeppninni við einkaaðila, en vakti athygli á að fátt benti til að stjórn fyrirtækisins hlustaði á ráðherrann.