Íslensk-indverska viðskiptaráðið eflist og opnar nýjan vef

Nýr viðskipta- og efnahagssamstarfssamningur Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) og Indlands (TEPA) felur í sér ný tækifæri í viðskiptum Íslands og Indlands. Stóraukinn áhugi er meðal íslenskra fyrirtækja á Indlandsviðskiptum, eins og sjá má á því að félagsmönnum Íslensk-indverska viðskiptaráðið, sem FA rekur, fjölgaði um helming á árinu. Viðskiptaráðið opnaði sérstakan vef, isin.is, þar sem birtar eru upplýsingar um viðburði tengda viðskiptum ríkjanna, greiningar tengdar TEPA-samningnum og margvíslegar aðrar gagnlegar upplýsingar tengdar viðskiptatengslum landanna.

ÍIV stóð fyrir ýmsum viðburðum á árinu, meðal annars málþingi um tækifæri tæknifyrirtækja á Indlandi og vinnustofu um tækifærin, sem TEPA opnar fyrirtækjum í tæknigeiranum. Fjölmennar hringborðsumræður voru haldnar með ráðuneytisstjóra indverska viðskiptaráðuneytisins. Þá stóðu FA og ÍIV ásamt Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytinu, að fjölmennri alþjóðlegri ráðstefnu, India Nordic Dialogue, sem í þetta sinn var haldin í Reykjavík, með þátttöku fulltrúa viðskiptalífs, stjórnmála, stjórnsýslu og fræðasamfélags frá Norðurlöndum og Indlandi.

Fréttir um málefnið

Innskráning