Öflugt starf Íslensk-evrópska verslunarráðsins

Starf Íslensk-evrópska verslunarráðsins var öflugt á árinu. Í mars gekkst ráðið fyrir opnum fundi um frumvarp utanríkisráðherra um bókun 35 við EES-samninginn og íslenska hagsmuni. Stjórn ráðsins sendi ennfremur frá sér tvær ályktanir vegna deilna Íslands og Evrópusambandsins um verndartolla á járnblendi. Hvatti stjórnin báða aðila til að virða EES-samninginn og forðast að brjóta ákvæði hans um tollamál, hvort sem það varðaði tolla á járnblendi eða pitsuost.

Í september áttu formaður og framkvæmdastjóri ÍEV gagnlega fundi í Brussel með framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, Eftirlitsstofnun EFTA og sendinefnd Íslands. Umræðuefnin voru m.a. tollflokkun á pitsuosti, Evrópureglur um merkingar á einnota plastvörum, einföldun regluverks atvinnulífsins, fyrirkomulag á úthlutun ESB-tollkvóta, viðræður um aukna fríverslun með sjávarafurðir og búvörur milli Íslands og ESB og möguleg beiting Evrópusambandsins á verndartollum gagnvart Íslandi.

Fréttir um málefnið

21. nóvember 2025
11. ágúst 2025

Innskráning