FA brást í upphafi árs við áskorun ríkisstjórnarinnar til almennings og hagsmunasamtaka og skilaði inn til stjórnvalda sextán tillögum um sparnað og hagræðingu í ríkisrekstri. FA lagði m.a. til ráðningarstopp í stjórnsýslunni, sem hefur blásið út undanfarin ár, og afnám áminningarskyldu vegna uppsagna ríkisstarfsmanna. Félagið benti á að gullhúðun Evrópureglna og æ flóknara eftirlit með fyrirtækjum leiddi jafnframt af sér hærri kostnað hjá ríkinu vegna fjölgunar starfsmanna sem sinna slíku eftirliti. Hagræðingarnefnd ríkisstjórnarinnar vakti sérstaka athygli á þeirri tillögu félagsins að lækka kostnað með því að draga úr gullhúðun og einfalda eftirlit.
Félagið lagði til að Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins yrði lögð niður, umfang RÚV minnkað verulega og styrkjum til einkarekinna fjölmiðla hætt um leið. Þá yrði komið í veg fyrir undirverðlagningu á þjónustu Íslandspósts, sem kostað hefur skattgreiðendur háar fjárhæðir í styrki til ríkisfyrirtækisins.
FA lagði til breytingar á lyfjaverðstefnu ríkisins í þágu aukinnar hagkvæmni. Félagið lagði jafnframt fram ýmsar tillögur um umbætur í opinberum innkaupum.
Stjórnarmenn í FA skrifuðu greinar til að vekja athygli á sparnaðartillögunum, sem einnig fengu ágæta umfjöllun fjölmiðla.