Tillögur um að koma viti í áfengislöggjöfina

FA hélt áfram baráttu sinni fyrir breytingum á áfengislöggjöfinni til frjálsræðisáttar. Félagið lagði enn á ný til lækkun á hæstu áfengissköttum í hinum vestræna heimi og benti einnig á margvíslega ósamkvæmni og galla á lögunum um áfengisskatta. Þannig er hærri skattur á áfengiseiningu í bjór en léttvíni, án þess að nokkur virðist geta rökstutt hvers vegna. Þá er Ísland eina Evrópuríkið fyrir utan Makedóníu og Tyrkland, sem leggur jafnháan skatt á styrkt vín og sterkt áfengi; eitt skattþrep gildir fyrir allt áfengi sterkara en 15%. Þetta þýðir að Ýmis vín, sem skilgreind eru sem léttvín, til dæmis frá Ítalíu, Ástralíu og Bandaríkjunum, fara upp fyrir 15% mörkin og verða fráleitlega dýr vegna þess að þau fá á sig sömu skattlagningu og vodki eða brennivín.

Félagið gagnrýndi hræsni og tvískinnung í umræðunni um sölufyrirkomulag áfengis og benti á að fjöldi undantekninga frá einkarétti ríkisins til sölu á áfengi fengi að viðgangast. FA hvatti stjórnvöld til að endurskoða áfengislöggjöfina í heild, leyfa almennt það sem viðgengst hvort sem er fyrir allra augum, og setja í leiðinni um það skynsamlegar reglur.

Fréttir um málefnið

Innskráning