Vinsæl örnámskeið

Örnámskeið FA hafa notið mikilla vinsælda, enda gefa þau uppteknum stjórnendum færi á að innbyrða nýja þekkingu á aðeins 30 mínútum. Við val á málefnum til að fara yfir á námskeiðunum er höfð hliðsjón af árlegri könnun FA meðal félagsmanna. Námskeiðin safnast svo í sarp á félagsmannavef FA, þar sem hægt er að horfa á þau hvenær sem er.

Á árinu voru haldin námskeið um sjálfbærniskýrslur og viðbrögð við einelti, kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustað, auk þess sem haldið var námskeið fyrir félagsmenn í notkun félagsmannavefjarins.

Fréttir um málefnið

Innskráning