Félag atvinnurekenda tekur þátt í Nýsköpunarvikunni 2021 með streymisviðburði á Facebook-síðu sinni, kl. 14 þriðjudaginn 1. júní. Yfirskrift viðburðarins er „Betri nýting með nýsköpun“.
Fyrirtæki innan FA hafa unnið að betri nýtingu hráefna og dregið úr matarsóun með margvíslegri nýsköpun. Á streymisviðburðinum kynnumst við þremur slíkum. Sprotafyrirtækin Pure Natura og Feel Iceland hafa unnið hágæða fæðubótarefni og heilsuvörur úr hráefnum sem lengi hafa verið vannýtt, þorskroði, lambainnmat og íslenskum jurtum. Sölufélag garðyrkjumanna er gamalgróið fyrirtæki sem undanfarin ár hefur þróað aðferðir til að fullnýta uppskeru grænmetisbænda og draga úr matarsóun.
Við heyrum af reynslu fyrirtækjanna, áskorunum og hindrunum sem þau hafa staðið frammi fyrir og hvað þau telja að virki í nýsköpun í matvælaframleiðslu.
Dagskrá:
Framþróun og fullnýting afurða í íslenskri garðyrkju
Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna
Betri nýting sjávarafurða með Feel Iceland
Hrönn Margrét Magnúsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Ankra / Feel Iceland
Upprunalega íslenska ofurfæðan
Rafn Franklín Hrafnsson, meðeigandi og sölu- og markaðsstjóri Pure Natura
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA kynnir