Betri vegur til Þorlákshafnar er samkeppnismál

08.07.2025

Félag atvinnurekenda hefur skrifað Eyjólfi Ármannssyni innviðaráðherra erindi og hvatt hann til að beita sér fyrir því að vegabætur á Þrengsla- og Þorlákshafnarvegi verði settar á samgönguáætlun. Tvö skipafélög sem veita gömlu risunum Eimskipi og Samskipum samkeppni reka nú áætlunarsiglingar til og frá Þorlákshöfn og bendir FA á að betri vegur til Þorlákshafnar væri mikilvæg samkeppnisaðgerð í framhaldi af tilmælum Samkeppniseftirlitsins til innviðaráðuneytisins og fleiri aðila um aðgerðir til að efla samkeppni í flutningum.

Engin viðbrögð við áliti Samkeppniseftirlitsins
Í erindi FA er kallað eftir svörum ráðuneytisins við spurningum FA, sem settar voru fram í erindi haustið 2023, stuttu eftir að Samkeppniseftirlitið birti álit sitt um samkeppni í flutningum í framhaldi af ákvörðun sinni vegna samkeppnisbrota Eimskips og Samskipa. Innviðaráðuneytið hefur enn ekki svarað því hvernig það hyggist bregðast við tilmælum samkeppnisyfirvalda.

Samkeppnin kemur frá Þorlákshöfn
FA vekur athygli ráðherra á þeirri stöðu, sem nú er uppi í skipaflutningum, þar sem tveir helstu keppinautar stóru skipafélaganna hafa komið sér upp starfsstöðvum í Þorlákshöfn. Smyril Line Cargo hefur starfað þar um nokkurt árabil og heldur uppi áætlunarsiglingum milli Þorlákshafnar og Þórshafnar, Hirtshals og Rotterdam. Torcargo hefur nýhafið áætlunarsiglingar milli Rotterdam og Þorlákshafnar. „Margir kostir eru við staðsetninguna í Þorlákshöfn, m.a. að siglingaleiðin er styttri og sótsporið minna. Hins vegar þurfa skipafélögin, sem þar starfa, að flytja vörur um lengri veg á landi til stærsta markaðarins á höfuðborgarsvæðinu en stóru skipafélögin, sem hafa aðstöðu í Sundahöfn,“ segir í erindi FA.

Mjór vegur, ekki í fullri þjónustu og með skert burðarþol
FA hefur aflað upplýsinga hjá Vegagerðinni um Þrengslaveginn, sem ásamt Þorlákshafnarvegi tengir Þorlákshöfn við Þjóðveg 1, Hringveg. Í svörum stofnunarinnar kemur m.a. fram að Þorlákshafnarvegur er ekki í efsta flokki vetrarþjónustu, þurft hefur að loka honum oftar en veginum um Hellisheiði, hann er ekki eins breiður og Vegagerðin telur æskilegt og hluti Þrengslavegar og hluti Þorlákshafnarvegar eru með skert burðarþol. Á undanförnum fjórum árum hafa 10 tonna ásþungatakmarkanir verið settar á Þrengslaveg í samtals 106 daga. Engar slíkar takmarkanir hafa verið settar á aðrar aðalleiðir á suðvesturhorninu á sama tíma.

Mikilvæg samkeppnisaðgerð
„Vegtenging við Þorlákshöfn, sem er síðri að gæðum en aðrar aðalleiðir á suðvesturhorninu, er samkeppnishindrun í vegi skipafélaganna sem starfa í Þorlákshöfn. FA beinir því til ráðherra að beita sér fyrir því að uppbygging Þrengslavegar – og eftir atvikum Þorlákshafnarvegar – þannig að vegurinn verði að fullu sambærilegur við aðrar aðalleiðir á svæðinu, verði sett á samgönguáætlun hið fyrsta. Til lengri tíma litið hlýtur að verða horft til 2+1-vegar líkt og á Hellisheiði. Slíkt væri ekki eingöngu samgöngubót og öryggismál, heldur ekki síður mikilvæg samkeppnisaðgerð í framhaldi af áliti Samkeppniseftirlitsins,“ segir í erindi FA til innviðaráðherra.

Erindi FA til innviðaráðherra

Nýjar fréttir

Innskráning