Borgin hleypi keppinautum Kynnisferða inn í Umferðarmiðstöðina

24.05.2024

Félag atvinnurekenda hefur sent Einari Þorsteinssyni borgarstjóra erindi og farið fram á fund til að ræða hvernig keppinautar fólksflutningafyrirtækisins Kynnisferða geti fengið aðstöðu í Umferðarmiðstöðinni við Vatnsmýrarveg (BSÍ), sem er í eigu Reykjavíkurborgar. FA telur samning borgarinnar við Kynnisferðir um leigu á Umferðarmiðstöðinni samkeppnishamlandi og sendir Samkeppniseftirlitinu og innviðaráðuneytinu afrit af erindinu.

Í bréfi FA til borgarstjóra er vitnað til áforma borgarinnar, sem birt voru þegar Reykjavíkurborg eignaðist Umferðarmiðstöðina árið 2012, en þá stóð til að bjóða öðrum þjónustaðilum en Kynnisferðum aðstöðu í húsinu svo það gæti orðið „öflug skiptistöð í samgöngum sem tengist þjónustu við ferðamenn og flugsamgöngur.“ Borgin hefur áfram miðað við að Umferðarmiðstöðin verði mistöð almenningssamgangna í miðbænum og stefnt að þróun alhliða samgöngumiðstöðvar á U-reitnum svokallaða, þar sem miðstöðin stendur. Núverandi meirihlutaflokkar í borgarstjórn hafa bókað í borgarráði að núverandi staðsetning samgöngumiðstöðvarinnar sé „framúrskarandi“ og feli í sér mikil tækifæri fyrir almenningssamgöngur.

Eitt fyrirtæki af mörgum situr að aðstöðu á framúrskarandi stað
Þessi áform borgarinnar eru enn ekki orðin að veruleika. „Á meðan er staðan hins vegar sú að eitt fyrirtæki af mörgum í fólkflutningum situr eitt að aðstöðu í eigu borgarinnar á framúrskarandi stað,“ segir í bréfi FA. „Kynnisferðir eru annað tveggja rútufyrirtækja sem sinna akstri frá Reykjavík til Keflavíkurflugvallar samkvæmt útboði Isavia. Í síðasta útboði var gerð krafa um að bjóðendur skyldu hafa yfir að ráða miðstöð í skilningi 3. gr. laga nr. 28/2017, þ.e. miðstöð, mannaðri starfsfólki, með t.d. innritunarborði, biðsal eða miðasölu. Keppinautur Kynnisferða rekur slíka aðstöðu við Skógarhlíð sem er alls ekki heppileg staðsetning, meðal annars vegna nálægðar við íbúðahverfi og aðra atvinnustarfsemi, eins og borgaryfirvöldum er vel kunnugt. Aðgangur að Umferðarmiðstöðinni er hins vegar ekki í boði, þar sem hún er í raun, fyrir tilstuðlan Reykjavíkurborgar, höfuðstöðvar og athafnasvæði Kynnisferða.“

Kynnisferðir reka Umferðarmiðstöðina sem sitt einkaathafnasvæði, en hún er í eigu Reykjavíkurborgar.

Borgin kemur Kynnisferðum í samkeppnishamlandi stöðu
FA vísar einnig til umfjöllunar Samkeppniseftirlitsins (SE) um fyrri samninga Vegagerðarinnar, sem var áður eigandi Umferðarmiðstöðvarinnar, við Kynnisferðir. SE taldi að þeir samningar gætu leitt til þess að fyrirtækið væri „í afar hagstæðri stöðu gagnvart keppinautum sínum.“

Að mati FA eiga nákvæmlega sömu sjónarmið við um stöðuna eins og hún er í dag. „Það eina sem virðist í grundvallaratriðum hafa breytzt er að nú er það Reykjavíkurborg, sem hefur með samningi við Kynnisferðir komið fyrirtækinu í stöðu gagnvart keppinautum sínum, sem hamlar klárlega virkri samkeppni í fólksflutningum, bæði almennt og sérstaklega hvað varðar akstur flugrútu á milli Reykjavíkur og Keflavíkurflugvallar,“ segir í bréfi félagsins til borgarstjóra.

Auk þess að óska eftir fundi með borgaryfirvöldum er farið fram á að borgin veiti upplýsingar um leigusamning borgarinnar við Kynnisferðir ehf., m.a. skilmála hans, gildistíma og uppsagnarákvæði, og eftir atvikum aðra samninga borgarinnar um Umferðarmiðstöðina.

Erindi FA til borgarstjóra

Nýjar fréttir

13. júní 2024

Innskráning