ESB skoðar tollkvótafyrirkomulagið á Íslandi

19.01.2016

IMG_4609Fréttablaðið greinir frá því í dag að á vettvangi Evrópusambandsins sé hafin skoðun á því verklagi sem viðhaft er á Íslandi við útboð tollheimilda búvara sem stjórnvöld hafa skuldbundið sig til að hleypa tollfrjálst inn í landið samkvæmt samningi við ESB.

Í frétt blaðsins er vitnað til umfjöllunar hér á vef Félags atvinnurekenda, um að þótt Ísland hafi samkvæmt samningi við ESB árið 2007 skuldbundið sig til að leyfa tollfrjálsan innflutning á tilteknu magni búvara þá geti raunveruleg tollvernd varanna numið tugum prósenta af innflutningsverði þeirra. Ástæðan er útboðskerfið, sem stjórnvöld nota til að úthluta innflutningsheimildunum, en þær eru seldar hæstbjóðanda. Þannig er útboðsgjald alifuglakjöts orðið svo hátt að álíka mikið kostar að flytja inn kjúkling frá ESB á tollfrjálsa kvótanum og á almennum tolli. Í báðum tilvikum er raunveruleg tollvernd tæplega 50 prósent af innflutningsverðinu.

Í umfjöllun FA kom fram að vandséð væri hvernig þetta stæðist ákvæði í samningi Íslands og ESB, en þar segir: „Samningsaðilar gera ráðstafanir til að tryggja að ávinningum, sem þeir veita hvor öðrum, verði ekki stefnt í hættu með öðrum takmarkandi innflutningsráðstöfunum.“

Í Fréttablaðinu er rætt við Klemens Ólaf Þrastarson, upplýsingafulltrúa sendinefndar ESB á Íslandi. „Við vitum af þessum athugasemdum Félags atvinnurekenda, en viljum ekki tjá okkur sérstaklega um þær að svo stöddu,“ er haft eftir Klemens í blaðinu.

Frétt Fréttablaðsins á Vísi

 

Nýjar fréttir

Innskráning