FA eggjar Bjarna að beita sér fyrir afnámi tolla vegna skorts

17.10.2024

Skortur er á eggjum frá innlendum framleiðendum og hefur innflutningur eggja snaraukist á árinu af þeim sökum. Félag atvinnurekenda hefur sent Bjarna Benediktssyni, sem í dag tók við embætti matvælaráðherra, erindi og hvatt hann til að leggja til við Alþingi að tollar á eggjum verði afnumdir til að halda verðlagi í skefjum á meðan innanlandsframleiðsla annar ekki eftirspurn.

Ýmislegt útskýrir að innlend eggjaframleiðsla annar ekki eftirspurn, þar á meðal fjölgun íbúa og ferðamanna, stórar pantanir á ferskum eggjum frá skemmtiferðaskipum yfir sumartímann og samdráttur í framleiðslugetu sumra eggjabúa þar sem ekki eru lengur veittar undanþágur frá aðbúnaðarreglugerðum. FA bendir í erindi sínu til ráðherra á að ástandið sé erfiðara en áður hafi þekkst, að mati þeirra sem lengi hafi starfað á matvælamarkaðnum, og ekkert sem bendi til að það lagist í bráð.

Tollar valda verðhækkunum
Ekki hefur verið eggjaskortur í verslunum, þótt úrval hafi verið minna en áður. Það hefur hins vegar reynst heildsölum og dreifingarfyrirtækjum erfitt að útvega stórnotendum, t.d. veitingahúsum, bakaríum og fleiri fyrirtækjum í matvælaiðnaði, nægilegt hráefni í framleiðslu sína. Framundan er mesta bakstursvertíð ársins hjá heimilunum og þörf matvælaframleiðenda fyrir hráefni sömuleiðis í hámarki í aðdraganda jóla.

Vegna lítils framboðs frá innlendum framleiðendum hefur innflutningur á eggjum mjög aukist á árinu. Á fyrstu átta mánuðum ársins voru þannig flutt inn rúmlega 92 tonn af ferskum eggjum frá Danmörku, samanborið við samtals 60 tonn á tveimur heilum árum þar á undan. Á fersku eggin leggjast tollar, sem hækka innflutningsverð þeirra um u.þ.b. 80%. Innflutningur á soðnum eggjum í stórum pakkningum, sem einkum eru nýtt sem hráefni í matvælaiðnaði, hefur sömuleiðis snaraukist, eða úr um 13 tonnum í fyrra í tæplega 26 tonn á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Innflutningur á öðrum skurnlausum eggjum hefur einnig aukist verulega og stefnir í það sama varðandi saltaðar eggjarauður, sem einkum eru nýttar sem hráefni í matvælaiðnaði.

FA bendir á að tollar á eggjum valdi augljósum hækkunum á verði til neytenda. „Ýmist stuðla tollarnir að hærra verði á eggjum út úr búð eða þá á aðföngum til t.d. brauðbaksturs og annarrar matvælaframleiðslu, sem skilar sér á endanum í hærra verði til neytenda,“ segir í erindi félagsins.

Ráðherra bregðist skjótt og örugglega við skorti
Eftir að búvörulögum var breytt árið 2019 getur matvælaráðherra ekki lengur gefið út svokallaðan skortkvóta, þ.e. heimildir til innflutnings á búvörum á lægri tollum, ef skortur er á innlendri framleiðslu. Vilji Alþingis var hins vegar skýr um að við skorti yrði brugðist með því að ráðherra legði til við þingið að það lækkaði tolla í slíkum tilvikum. Í nefndaráliti meirihluta atvinnuveganefndar frá 2019 segir þannig: „Tekur meiri hlutinn þó undir að nauðsynlegt er að til staðar sé ákveðinn sveigjanleiki til að bregðast við óvæntum aðstæðum á markaði. Nauðsynlegt sé að unnt verði að bregðast við skorti og leggur meiri hlutinn áherslu á að sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra bregðist skjótt og örugglega við með lagasetningu í slíkum tilfellum.“

Að mati FA eru nú uppi slíkar aðstæður, sem ráðherra ber að bregðast við. Félagið leggur til að matvælaráðherra leggi hið fyrsta fram frumvarp til laga um afnám tolla af eggjum á meðan innlend framleiðsla annar ekki eftirspurn á markaðnum. Félagið bendir á að mögulega mætti einnig með breytingartillögu bæta slíkum ákvæðum við þingmál sem varða skatta og gjöld og afgreiða þarf með fjárlagafrumvarpi næsta árs.

„Slíkt myndi stuðla að því að markmið 1. gr. b. búvörulaga náist, um „að framleiðsla búvara til neyslu og iðnaðar verði í sem nánustu samræmi við þarfir þjóðarinnar og tryggi ávallt nægjanlegt vöruframboð við breytilegar aðstæður í landinu.“ Sömuleiðis myndi slík breyting vera innlegg í lækkun verðlags og þar með baráttuna við verðbólguna,“ segir í erindi FA til Bjarna Benediktssonar.

Erindi FA til matvælaráðherra í heild

Nýjar fréttir

Innskráning