FA leggst gegn fækkun akreina og stæða á Suðurlandsbraut

11.03.2026

Félag atvinnurekenda leggur til breytingar á tillögu að deiliskipulagi Suðurlandsbrautar, sem nú er til umsagnar í Skipulagsgátt. Félagið leggst eindregið gegn fækkun akreina fyrir bílaumferð á götunni, um leið og akreinum fyrir Borgarlínu verður komið fyrir. Þá hvetur FA Reykjavíkurborg til að leita leiða til að fækka bílastæðum við götuna minna en tillagan gerir ráð fyrir, eða þá bæta upp fyrir fækkun stæða með bílastæðahúsi við nýja Þjóðarhöll í Laugardal. Þá leggur félagið mikla áherslu á gott skipulag framkvæmda og samráð við atvinnurekendur, þannig að t.d. klúðrið vegna framkvæmda við Hverfisgötu verði ekki endurtekið.

Stífni grefur undan stuðningi við Borgarlínu
Í umsögn FA til Reykjavíkurborgar er bent á að félagið gæti hagsmuna fjölda fyrirtækja við Suðurlandsbraut og í Múlahverfi. Á svæðinu, sem er eitt helsta verslunar- og þjónustusvæði Reykjavíkur, starfa vel á annað þúsund fyrirtæki, með a.m.k. 5.500 starfsmenn og yfir 400 milljarða króna veltu. FA bendir á að fyrirtækin eigi að sjálfsögðu mikið undir því að aðgengi að hverfinu sé gott, jafnt fyrir starfsfólk og viðskiptavini, og umferð greið. FA og Samtök verslunar og þjónustu héldu fund með fyrirtækjum í hverfinu síðastliðinn föstudag, en þar kom fram hörð gagnrýni á áform borgarinnar.

FA tekur jafnframt fram að félagið og félagsmenn þess almennt styðji áform um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu, þar með talin áform um Borgarlínu. „Félagið telur hins vegar að stífni borgaryfirvalda við útfærslu Borgarlínu, ekki sízt hvað varðar legu hennar um Suðurlandsbraut, stefni stuðningi við verkefnið í hættu. Að mati félagsins verða borgaryfirvöld að vera reiðubúin að hlusta á áhyggjur, ábendingar og tillögur atvinnurekenda í borginni ef áform um eflingu almenningssamgangna eiga að ganga eftir og njóta stuðnings,“ segir í umsögn FA.

Byrjað á öfugum enda
Í umfjöllun um áformin um að fækka akreinum fyrir bílaumferð á Suðurlandsbraut úr fjórum í tvær bendir FA m.a. á að umferðarspár virðist byggjast á þeim forsendum að framkvæmdir við Miklubrautargöng, Sæbrautarstokk og Sundabraut gangi eftir. Hins vegar er gert ráð fyrir framkvæmdum við Suðurlandsbraut 2027-2030, en hinar framkvæmdirnar eru mun lengra inni í framtíðinni. „Þannig eru framkvæmdir við Miklubrautargöng áformaðar 2032-2038. Rætt hefur verið um að Sæbrautarstokkur yrði gerður 2027-2030, en augljóslega er ekkert vit í að fara í framkvæmdir við hann á sama tíma og við Suðurlandsbrautina. Varðandi Sundabraut er ekkert fast í hendi. Þarna er því verið að byrja á öfugum enda,“ segir í umsögn FA. „Þessi forgangsröðun í framkvæmdum mun að öllum líkindum þýða umferðarteppur og tafir á Suðurlandsbraut og að umferð leiti annarra leiða, t.d. í gegnum Múlahverfið, með tilheyrandi teppum og töfum á því svæði. Af öllu þessu hafa atvinnurekendur í hverfinu stórar áhyggjur.“

FA bendir á leiðir til að koma akreinum fyrir bílaumferð fyrir. Varla sé þörf á nýjum hjóla- og göngubrautum sunnan götunnar, þar sem greiðar leiðir séu fyrir gangandi og hjólandi norðan hennar. Nær sé að bæta aðgengi á gönguleiðinni meðfram byggingunum sunnan götunnar. Þá sé ástæða til að endurskoða það rými, sem eigi að gefa gróðri við götuna.

Fækkun stæða mætt með bílastæðahúsi
Varðandi fyrirhugaða fækkun bílastæða, bendir FA á þá augljósu hættu að bifreiðum viðskiptavina fyrirtækja við Suðurlandsbraut verði frekar lagt uppi í Múlahverfi, með tilheyrandi álagi á stæði þar. FA bendir jafnframt á að fallið hafi verið frá áformum um bílastæðahús við nýja Þjóðarhöll, en með slíku húsi mætti mæta fækkun stæða við Suðurlandsbraut.

Þarf góðar áætlanir og samráð við fyrirtækin
FA bendir á að atvinnurekendur við Suðurlandsbraut hafi miklar áhyggjur af því raski, sem fylgja muni breytingum á götunni á framkvæmdatíma. Bent er á skelfileg fordæmi t.d. frá endurnýjun Hverfisgötu, þar sem framkvæmdir töfðust misserum saman með afar neikvæðum afleiðingum fyrir rekstur fyrirtækja við götuna. Jafnframt hafi atvinnurekendur í hverfinu miklar áhyggjur af því að framkvæmdir við nýju Þjóðarhöllina séu áformaðar á sama tíma og umbreyting Suðurlandsbrautar samkvæmt deiliskipulagstillögunni. „Sú staðreynd að reisa verður höllina fyrir árið 2031, þegar Ísland á að halda heimsmeistaramót í handbolta, þýðir að tímabil þessara tveggja framkvæmda skarast að verulegu leyti. Byggingu hallarinnar fylgir veruleg þungaumferð og rask. Þessar aðstæður auka enn á mikilvægi þess að áætlanir séu vandaðar, skýrar, aðgengilegar, kynntar með góðum fyrirvara og að þeim megi treysta,“ segir í umsögn FA.

FA kallar eftir því að þegar endanleg útfærsla breytinganna liggur fyrir, gangist borgin fyrir virku samráði og samtali við fyrirtækin í hverfinu um útfærslu framkvæmda og leitist við að læra af fyrri mistökum. „Nauðsynlegt er að fyrirkomulagið verði kynnt með a.m.k. hálfs árs fyrirvara. Um leið þarf Reykjavíkurborg að birta áreiðanlega tímaáætlun fyrir einstaka verkþætti og svæði, þar sem m.a. komi fram hvernig lokunum og aðgangi að húsnæði fyrirtækjanna fyrir viðskiptavini verði háttað. FA undirstrikar enn að þetta samráð verður að fara fram við fyrirtæki í öllu hverfinu, ekki eingöngu við húseigendur á Suðurlandsbraut,“ segir í umsögn félagsins.

Umsögn FA í heild

Nýjar fréttir

Innskráning