FA sýnir sjávarafurðir í Brussel

25.04.2018

Félag atvinnurekenda tekur að vanda þátt í alþjóðlegu sjávarútvegssýningunni í Brussel og eins og undanfarin ár stendur Bjarndís Lárusdóttir skrifstofustjóri FA vaktina í bás félagsins ásamt fulltrúum félagsmanna. Þrjú aðildarfyrirtæki FA sýna vörur sínar í bás félagsins, en það eru Íslenska hf., G. Ingason hf. og Íslenska útflutningsmiðstöðin hf.

Sjávarútvegssýningin, Seafood Expo Global, er nú haldin í 26. sinn og stendur dagana 24.-26. apríl. Sýningin er ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og sækja hana um 26.000 gestir. Sýnendur og þátttakendur koma frá liðlega 140 löndum.

Íslandsstofa heldur utan um þátttöku íslensku fyrirtækjanna. Íslenski landsbásinn þekur 900 fermetra og skiptist nokkurn veginn jafnt á milli sýnenda sjávarafurða og véla, tækja og þjónustu.

Nýjar fréttir

Innskráning