Félag atvinnurekenda hefur undirritað samkomulag við VR og Landssamband íslenzkra verzlunarmanna, efnislega samhljóða því sem síðarnefndu samtökin undirrituðu við Samtök atvinnulífsins í gær vegna forsendubrests kjarasamnings aðila. Samningur FA og VR/LÍV heldur gildi sínu en samkvæmt samkomulaginu er kostur á að stytta hann um tvo mánuði í hæsta lagi ef verðbólga verður umfram viðmið á næsta ári.
Í samkomulaginu eru sömu ákvæði og í samkomulagi stéttarfélaganna við SA, um heimild til styttingar kjarasamnings aðila ef verðbólgan í október á næsta ári mælist yfir 4,3% á ársgrundvelli eða verðbólgan á sex mánaða tímabili þar á undan verður yfir 3,8% miðað við árshraða. Aðilar munu, þegar verðbólgumæling í október liggur fyrir, skoða undirliggjandi þætti verðbólgunnar og taka m.a. tillit til þess hvort innflutt verðbólga sé meginástæða þess að forsendur aðila stóðust ekki. Ef aðilar eru sammála um að sú sé raunin þá mun ekki koma til uppsagnar kjarasamninga eða þeir verða styttir minna en um tvo mánuði. Ef ekki næst samkomulag falla samningar úr gildi þann 30. nóvember 2027.
„Aðilar eru í ljósi þessa samkomulags og yfirlýsinga sem tengjast viðbrögum við forsendubresti kjarasamninga, sammála um að komið hafi fram fullnægjandi viðbragð vegna forsendubrestsins og því muni kjarasamningar aðila halda gildi sínu,“ segir í samkomulaginu.
Fram kemur í samkomulaginu að FA taki undir hvatningu Samtaka atvinnulífsins til fyrirtækja, að þau haldi aftur af verðhækkunum eins og frekast er unnt út gildistíma samninganna, og beinir henni til sinna félagsmanna.
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri FA og Halla Gunnarsdóttir formaður VR undirrituðu samkomulagið á skrifstofu VR í morgun.